1. gr. 4. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Um tilkynningar vegna veiða skv. þessari reglugerð gilda ákvæði reglugerðar nr. 285/2014, um veiðieftirlit á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC), með síðari breytingum. 2. gr. 6. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Veiðar á karfa (S.Mentella) í Síldarsmugunni (ICES svæði I+II), austan 22°V eru heimilar frá og með 1. ágúst til og með 31. desember 2014. Sameiginlegar aflaheimildir aðildarríkja NEAFC fyrir árið 2014 eru 19.500 lestir. Þennan afla skal skrá sem „RED“ í tilkynningarkerfinu. Fiskistofa tilkynnir leyfishöfum þegar 80% magnsins er náð. Þegar sameiginlegar aflaheimildir aðildarríkja NEAFC fyrir árið 2014 eru uppurnar skal Fiskistofa afturkalla öll útgefin veiðileyfi. Við uppreikning á hausuðum og slægðum karfa í afla upp úr sjó skal miða við stuðulinn 1,70. 3. gr. Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða og lögum nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 8. apríl 2014. | F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, | Jóhann Guðmundsson. |
Baldur P. Erlingsson. |