1. gr.
Gildissvið.
Reglur þessar gilda um nánari framkvæmd laga nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum, sbr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 frá 16. apríl 2014 um markaðssvik (reglugerð um markaðssvik) hvað varðar:
- Efni tilkynninga sem ber að leggja fram hjá lögbærum yfirvöldum og um samantekt, birtingu og viðhald listans yfir tilkynningar skv. 4. gr. reglugerðar um markaðssvik.
- Tímasetningu, form og sniðmát framlagningar á tilkynningum til lögbærra yfirvalda skv. 4. gr. reglugerðar um markaðssvik.
- Skilyrði sem gilda um endurkaupaáætlanir og verðjöfnunarráðstafanir skv. 5. gr. reglugerðar um markaðssvik.
- Viðeigandi fyrirkomulag, kerfi og verklag fyrir markaðsaðila sem miðla upplýsingum og framkvæma markaðsþreifingar skv. 11. gr. reglugerðar um markaðssvik.
- Kerfi og sniðmát fyrir tilkynningar sem markaðsaðilar sem miðla upplýsingum og framkvæma markaðsþreifingar skulu nota og snið skránna sem nota skal fyrir tilkynningar skv. 11. gr. reglugerðar um markaðssvik.
- Viðmið, verklag og kröfur um viðurkenningu markaðsframkvæmdar og kröfur í tengslum við að viðhalda henni, fella hana úr gildi eða breyta skilyrðum fyrir viðurkenningu hennar skv. 13. gr. reglugerðar um markaðssvik.
- Tæknilegar leiðir til viðeigandi opinberrar birtingar innherjaupplýsinga og til að fresta opinberri birtingu innherjaupplýsinga skv. 17. gr. reglugerðar um markaðssvik.
- Nákvæmt snið innherjalista og uppfærslu á innherjalistum skv. 18. gr. reglugerðar um markaðssvik.
- Form og sniðmát fyrir tilkynningu og opinbera birtingu að því er varðar viðskipti stjórnenda skv. 19. gr. reglugerðar um markaðssvik.
- Fullnægjandi fyrirkomulag, kerfi, verklag og sniðmát fyrir tilkynningar sem notað er til að koma í veg fyrir, greina og tilkynna um markaðsmisnotkun eða grunsamleg fyrirmæli eða viðskipti skv. 16. gr. reglugerðar um markaðssvik.
- Tæknilegt fyrirkomulag í tengslum við hlutlæga framsetningu fjárfestingarráðlegginga og annarra upplýsinga sem fela í sér ráðleggingu eða tillögu um fjárfestingaráætlun og upplýsingagjöf um tiltekna hagsmuni eða tilgreiningu á hagsmunaárekstrum skv. 20. gr. reglugerðar um markaðssvik.
- Verklag og eyðublöð til samstarfs, upplýsingaskipta og aðstoðar milli lögbærra yfirvalda og samstarfs og upplýsingaskipta milli lögbærra yfirvalda og Evrópsku verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunarinnar skv. 24. og 25. gr. reglugerðar um markaðssvik.
- Verklag og eyðublöð fyrir lögbær yfirvöld til að skiptast á upplýsingum við Evrópsku verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunina skv. 33. gr. reglugerðar um markaðssvik.
2. gr.
Tilvísanir.
Lánastofnun skv. CRDIV: Tilvísanir til lánastofnana með starfsleyfi skv. tilskipun 2013/36/ESB skal skilja sem tilvísanir til verðbréfafyrirtækja með starfsleyfi skv. lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.
Lagarammi MiFID: Tilvísanir í reglum þessum til lagaramma MiFID skal skilja sem tilvísanir til laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga.
Lagarammi UCITS: Tilvísanir í reglum þessum til lagaramma UCITS skal skilja sem tilvísanir til laga nr. 116/2021 um verðbréfasjóði.
Lagarammi AIFMD: Tilvísanir í reglum þessum til lagaramma AIFMD skal skilja sem tilvísanir til laga nr. 45/2020 um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.
Opinbert kerfi skv. tilskipun 2004/109/EB: Tilvísanir til opinbers kerfis skv. 21. gr. tilskipunar 2004/109/EB skal skilja sem tilvísanir til kerfis skv. 36. gr. laga nr. 20/2021 um upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa og flöggunarskyldu.
Samstæða: Tilvísanir í reglum þessum til samstæðu eins og hún er skilgreind í 11. mgr. 2. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2013/34/ESB skal skilja sem tilvísanir til samstæðu skv. 33. tölulið 2. gr. laga nr. 3/2006 um ársreikninga.
Verðbréfafyrirtæki skv. MiFID II: Tilvísanir til verðbréfafyrirtækja með starfsleyfi skv. tilskipun 2014/65/ESB skal skilja sem tilvísanir til verðbréfafyrirtækja með starfsleyfi skv. lögum nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga.
Viðskipti skv. endurkaupaáætlun skv. tilskipun 2012/30/ESB: Tilvísanir í reglum þessum til viðskipta skv. endurkaupaáætlun sem heimiluð er í samræmi við 1. mgr. 21. gr. tilskipunar 2012/30/ESB skal skilja sem tilvísanir til viðskipta skv. endurkaupaáætlun skv. 3. mgr. 55. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög.
Þjónusta verðbréfafyrirtækja skv. viðauka I við MiFID II: Tilvísanir til þjónustu verðbréfafyrirtækja sem talin er upp í A og B þætti I. viðauka tilskipunar 2014/65/ESB skal skilja sem tilvísanir til fjárfestingarþjónustu og fjárfestingarstarfsemi og viðbótarþjónustu skv. 15. og 66. tölulið 1. mgr. 4. gr. laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga.
3. gr.
Innleiðing reglugerða.
Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi eftirfarandi reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar (ESB) sem birtar eru í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 55 frá 26. ágúst 2021, bls. 232-262 og nr. 8 frá 10. febrúar 2022, bls. 16-48 og 70-119, með þeim aðlögunum sem leiða af ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 306/2019 frá 13. desember 2019, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 14 frá 5. mars 2020 bls. 61-65, sbr. einnig bókun 1 um altæka aðlögun við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993, þar sem bókunin er lögfest:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/378 frá 11. mars 2016 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar tímasetningu, form og sniðmát framlagningar á tilkynningum til lögbærra yfirvalda samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/523 frá 10. mars 2016 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar form og sniðmát fyrir tilkynningu og opinbera birtingu að því er varðar viðskipti stjórnenda í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014.
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/908 frá 26. febrúar 2016 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um tæknilega eftirlitsstaðla um viðmið, verklag og kröfur um viðurkenningu markaðsframkvæmdar og kröfur í tengslum við að viðhalda henni, fella hana úr gildi eða breyta skilyrðum fyrir viðurkenningu hennar.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/909 frá 1. mars 2016 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um tæknilega eftirlitsstaðla að því er varðar efni tilkynninga sem ber að leggja fram hjá lögbærum yfirvöldum og um samantekt, birtingu og viðhald listans yfir tilkynningar.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/957 frá 9. mars 2016 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla um fullnægjandi fyrirkomulag, kerfi og verklag og sniðmát fyrir tilkynningar sem notað er til að koma í veg fyrir, greina og tilkynna um markaðsmisnotkun eða grunsamleg fyrirmæli eða viðskipti.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/958 frá 9. mars 2016 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla um tæknilegt fyrirkomulag í tengslum við hlutlæga framsetningu fjárfestingarráðlegginga og annarra upplýsinga sem fela í sér ráðleggingu eða tillögu um fjárfestingaráætlun og upplýsingagjöf um tiltekna hagsmuni eða tilgreiningu á hagsmunaárekstrum.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/959 frá 17. maí 2016 um tæknilega framkvæmdarstaðla fyrir markaðsþreifingar að því er varðar kerfi og sniðmát fyrir tilkynningar sem markaðsaðilar sem miðla upplýsingum skulu nota og snið skránna í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/960 frá 17. maí 2016 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla um viðeigandi fyrirkomulag, kerfi og verklag fyrir markaðsaðila sem miðla upplýsingum og framkvæma markaðsþreifingar.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1052 frá 8. mars 2016 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um tæknilega eftirlitsstaðla fyrir skilyrðunum sem gilda um endurkaupaáætlanir og verðjöfnunarráðstafanir.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1055 frá 29. júní 2016 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar tæknilegar leiðir til viðeigandi opinberrar birtingar innherjaupplýsinga og til að fresta opinberri birtingu innherjaupplýsinga í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1158 frá 29. júní 2017 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar verklag og eyðublöð fyrir lögbær yfirvöld til að skiptast á upplýsingum við Evrópsku verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunina eins og um getur í 33. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/292 frá 26. febrúar 2018 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar verklag og eyðublöð til upplýsingaskipta og aðstoðar milli lögbærra yfirvalda samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik.
Með reglum þessum öðlast einnig gildi hér á landi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1406 frá 2. október 2020 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar verklag og eyðublöð til upplýsingaskipta og samvinnu milli lögbærra yfirvalda, Evrópsku verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunarinnar, framkvæmdastjórnarinnar og annarra aðila skv. 2. mgr. 24. gr. og 25. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 41 frá 16. maí 2024, bls. 16-30, með þeim aðlögunum sem leiða af ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 98/2023 frá 28. apríl 2023, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 81 frá 9. nóvember 2023 bls. 42-43, sbr. einnig bókun 1 um altæka aðlögun við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993, þar sem bókunin er lögfest.
Með reglum þessum öðlast einnig gildi hér á landi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1210 frá 13. júlí 2022 um tæknilega framkvæmdarstaðla fyrir beitingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 að því er varðar snið innherjalista og uppfærslu þeirra, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 58 frá 1. ágúst 2024, bls. 88-95, með þeim aðlögunum sem leiða af ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 328/2022 frá 9. desember 2022, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 48 frá 29. júní 2023 bls. 63-64, sbr. einnig bókun 1 um altæka aðlögun við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993, þar sem bókunin er lögfest.
4. gr.
Gildistaka.
Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 1., 2., 3., 4., 6., 7., 8., 9., 10., 11., 13. og 16. tölulið 2. mgr. 19. gr. laga nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum, taka gildi þegar í stað. Á sama tíma falla úr gildi reglur nr. 320/2022 um aðgerðir gegn markaðssvikum.
Seðlabanka Íslands, 15. ágúst 2024.
|
Ásgeir Jónsson |
Rannveig Júníusdóttir |
|
seðlabankastjóri. |
framkvæmdastjóri. |
|