1. gr.
Samkvæmt 2. mgr. 12. gr. varnarmálalaga nr. 34/2008 ber ráðherra að auglýsa landfræðileg mörk öryggis- og varnarsvæða.
2. gr.
Öryggissvæði eru á Keflavíkurflugvelli, Miðnesheiði, Bolafjalli, Gunnólfsvíkurfjalli, Stokknesi og í Helguvík.
Varnarsvæði er í Grindavík.
Í fylgiskjölum með auglýsingu þessari er að finna hnitaskrár öryggis- og varnarsvæða ásamt yfirlitsmyndum.
3. gr.
Auglýsing þessi er birt á grundvelli 2. mgr. 12. gr. varnarmálalaga nr. 34/2008 og k-liðar, 2. töluliðar, 7. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands nr. 71/2013 og öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 30. júlí 2015.
Gunnar Bragi Sveinsson.
Stefán Haukur Jóhannesson.
Fylgiskjöl. (sjá PDF-skjal)
|