Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 441/2018

Nr. 441/2018 17. apríl 2018

REGLUR
um breytingu á reglum nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands.

1. gr.

Í stað orðanna „félags- og mannvísindadeild“ í 2. mgr. 11. gr. reglnanna kemur: félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild.

2. gr.

Í stað orðanna „félags- og mannvísindadeild“ í 1. mgr. X. kafla reglnanna kemur: félagsfræði-, mann­fræði- og þjóðfræðideild. Jafnframt orðast fyrirsögn á undan 84. gr. reglnanna svo: Félags­fræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild.

3. gr.

Í stað orðanna „félags- og mannvísindadeild“ í 1., 4., 5., 8., 11. og 12. mgr. 84. gr. reglnanna kemur, í viðeigandi beygingarfalli: félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild.

4. gr.

Í stað orðanna „félags- og mannvísindadeild“ í 3., 7. og 8. mgr. 85. gr. reglnanna kemur, í við­eigandi beygingarfalli: félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild.

5. gr.

Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, að fenginni tillögu félags­vís­indasviðs, eru settar í samræmi við lög nr. 85/2008 um opinbera háskóla. Reglurnar öðlast gildi 1. júlí 2018.

Háskóla Íslands, 17. apríl 2018.

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.


B deild - Útgáfud.: 4. maí 2018