1. gr.
2. málsl. 2. mgr. 57. gr. reglnanna fellur brott.
2. gr.
1. mgr. 100. gr. reglnanna orðast svo í heild sinni:
Til þess að hefja nám á þriðja námsári BS-náms í lyfjafræði skal nemandi hafa lokið öllum námskeiðum sem tilheyra fyrsta námsári og að lágmarki 40 einingum í námskeiðum sem tilheyra öðru námsári, alls 100 einingum.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 102. gr. reglnanna:
- Orðin „sbr. 101. gr.“ í 1. málsl. 5. mgr. falla brott ásamt kommu fyrir framan þau.
- Á eftir 1. málsl. 5. gr. bætist við nýr málsliður, svohljóðandi: Lágmarkseinkunn fyrir námskeið sem tekin eru sem hluti af námi til BS- eða kandídatsnáms í læknisfræði er 5,0, nema deild ákveði annað, sbr. 61. gr.
- Á eftir 3. málsl. 6. mgr. bætast við tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Ef fjöldi nemenda í BS-námi í læknisfræði við Háskóla Íslands, sem ætlar að hefja kandidatsnám í læknisfræði, er lægri en ákveðið var við inntöku í BS-námið þremur árum fyrr, er deildinni heimilt ef svigrúm leyfir að taka inn nemendur í kandídatsnámið í læknisfræði sem lokið hafa samsvarandi BS-prófi frá öðrum háskóla. Nefnd skipuð af læknadeild er deildarforseta til aðstoðar við að meta umsóknir.
4. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar í samræmi við lög nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 1. júlí 2024.
Jón Atli Benediktsson.
|