Forseti Íslands gjörir kunnugt:
Samkvæmt tillögu forsætisráðherra og með skírskotun til 15. gr. stjórnarskrárinnar og laga um Stjórnarráð Íslands skiptist Stjórnarráð Íslands í ráðuneyti sem hér segir:
- forsætisráðuneyti,
- atvinnuvegaráðuneyti,
- dómsmálaráðuneyti,
- félags- og húsnæðismálaráðuneyti,
- fjármála- og efnahagsráðuneyti,
- heilbrigðisráðuneyti,
- innviðaráðuneyti,
- menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti,
- mennta- og barnamálaráðuneyti,
- umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti,
- utanríkisráðuneyti.
Úrskurður þessi öðlast gildi 15. mars 2025. Frá sama tíma falla úr gildi ákvæði eldri forsetaúrskurðar nr. 5 frá 31. janúar 2022 um skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti.
Gjört á Bessastöðum, 14. mars 2025.
Halla Tómasdóttir. (L. S.)
|