Ríkisskattstjóri hefur ákveðið að tilkynningu um hvaða félag í samstæðunni annist skil á ríki-fyrir-ríki skýrslu (RSK 4.31) fyrir hönd samstæðunnar, skuli skilað eigi síðar en 20. janúar 2018. Tilkynningunni skal skilað á netfangið [email protected].
Allar fyrirspurnir vegna framangreindra skila má senda á netfangið [email protected].
Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt 91. gr. a laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, öðlast þegar gildi.
Reykjavík, 10. janúar 2018.
Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri.
|