Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1130/2019

Nr. 1130/2019 10. desember 2019

REGLUGERÐ
um fjárhæðir bóta slysatrygginga almannatrygginga fyrir árið 2020.

1. gr.

Fjárhæðir bóta samkvæmt II. kafla laga nr. 45/2015 um slysatryggingar almannatrygginga skulu vera sem hér segir fyrir árið 2020:

  1. Dagpeningar, skv. 3. mgr. 11. gr., 2.287 kr. á dag.
  2. Dagpeningar vegna barns á framfæri, skv. 3. mgr. 11. gr., 513 kr. á dag.
  3. Örorkulífeyrir, (100%) skv. 12. gr., 48.108 kr. á mánuði, 577.288 kr. á ári.
  4. Dánarbætur, skv. a-lið, 1. mgr. 13. gr., 53.097 kr. á mánuði, 637.166 kr. á ári.
  5. Barnalífeyrir, skv. b-lið 1. mgr. 13. gr., 35.565 kr. á mánuði, 426.774 kr. á ári.
  6. Dánarbætur, skv. c-lið 1. mgr. 13. gr., 662.726–1.988.900 kr. eingreiðsla.
  7. Dánarbætur, skv. 2. mgr. 13. gr., 928.216 kr. eingreiðsla.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 23. gr. og 2. mgr. 25. gr. laga nr. 45/2015, um slysatryggingar almannatrygginga, sbr. 13. mgr. 32. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2020.

Heilbrigðisráðuneytinu, 10. desember 2019.

Svandís Svavarsdóttir.

Elsa B. Friðfinnsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 16. desember 2019