I. KAFLI
Almennt.
1. gr.
Gildissvið.
Fyrir þjónustu og eftirlit, sem Fiskistofu er falið að sinna samkvæmt lögum nr. 36/1992 um Fiskistofu, lögum nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða, lögum nr. 57/1996 um umgengni um nytjastofna sjávar, lögum nr. 79/1997 um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, lögum nr. 151/1996 um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, lögum nr. 54/1992 um vinnslu afla um borð í skipum, lögum nr. 61/2006 um lax- og silungsveiði, lögum nr. 85/2000 um framkvæmd samnings um alþjóðaverslun með tegundir villtra dýra og plantna sem eru í útrýmingarhættu, upplýsingalögum nr. 140/2012, og reglugerðum, sem byggja á framangreindum lögum, innheimtir stofnunin gjald samkvæmt gjaldskrá þessari.
Gjald fyrir eftirlit og þjónustu skal ekki vera hærra en raunkostnaður af veitingu þjónustu og eftirlits.
Gjaldskrá þessi gildir einnig um aðra gjaldskylda starfsemi Fiskistofu samkvæmt lögum.
2. gr.
Gjald fyrir vinnu sérfræðings og veiðieftirlitsmanns.
Fiskistofa innheimtir gjald samkvæmt gjaldskrá þessari fyrir verkefni og þjónustu, sem stofnuninni eru falin í lögum og heimilt er að taka gjald fyrir, sem nemur 24.500 krónum fyrir vinnu sérfræðings og 26.600 krónum fyrir vinnu veiðieftirlitsmanns á hverja klukkustund.
3. gr.
Innheimta.
Gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari skulu greidd samkvæmt reikningi. Gjalddagi er við útgáfu reiknings en eindagi 15 dögum síðar. Sé gjald ekki greitt á eindaga reiknast dráttarvextir frá gjalddaga.
Innheimta má gjöld með fjárnámi án undangengins dóms eða sáttar.
Gjöld fyrir veiðileyfi og strandveiðigjald samkvæmt 4. gr. skulu greidd áður en leyfi er gefið út.
II. KAFLI
Leyfisveitingar, vottorð o.fl.
4. gr.
Veiðileyfi.
Fyrir veitingu almenns leyfis til veiða í atvinnuskyni samkvæmt 4. gr. laga um stjórn fiskveiða skal greiða gjald í samræmi við 1. mgr. 6. gr. laga nr. 36/1992 um Fiskistofu. Sama gjald skal greiða fyrir önnur veiðileyfi, sem veitt eru á grundvelli laga um stjórn fiskveiða, laga um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, laga um fiskveiðar utan lögsögu Íslands eða annarra laga, sem kveða á um stjórn fiskveiða.
Vegna útgáfu leyfis til strandveiða er innheimt strandveiðigjald í samræmi við 2. mgr. 6. gr. laga um Fiskistofu, auk gjalds fyrir veiðileyfi samkvæmt 1. mgr.
Gjöld samkvæmt 1. og 2. mgr. skulu greidd áður en leyfi er gefið út.
5. gr.
Vigtunarleyfi.
Vegna umsóknar um vigtunarleyfi samkvæmt 2. mgr. 6. gr. laga um umgengni um nytjastofna skal greiða 246.500 krónur fyrir úttekt á vigtunaraðstöðu og útgáfu leyfis samkvæmt 1. málsl. 2. mgr. 6. gr. laganna (heimavigtunarleyfi) og 219.900 krónur fyrir úttekt á vigtunaraðstöðu og útgáfu leyfis samkvæmt 3. málsl. 2. mgr. 6. gr. (endurvigtunarleyfi).
Við breytingu á leyfi eða endurnýjun skal fara fram úttekt á vigtunaraðstöðu. Fyrir slíka úttekt skal greiða 166.600 krónur.
6. gr.
Leyfi til framkvæmda við ár og vötn.
Fyrir leyfi til framkvæmda í eða við veiðivatn samkvæmt 1. málsl. 1. mgr. 33. gr. laga um lax- og silungsveiði skal greiða 24.500 krónur.
7. gr.
Veiði- og vinnsluvottorð.
Fyrir veiðivottorð til að staðreyna löglegan uppruna afla og afurða í samræmi við 9. gr. reglugerðar nr. 994/2013 um skýrsluskil vegna viðskipta með sjávarafla skal greiða 200 krónur.
Fyrir vinnsluvottorð í samræmi við gr. 14(2) og IV. viðauka reglugerðar EB nr. 1005/2008, sbr. samkomulag við Evrópusambandið 24. nóvember 2009 um útgáfu vottorða í samræmi við reglugerð EB nr. 1005/2008 um stofnun kerfis til þess að fyrirbyggja, hindra og uppræta ólöglegar, óskráðar og eftirlitslausar veiðar, skal greiða 8.200 krónur.
8. gr.
CITES-vottorð og -leyfi.
Fyrir vottorð og leyfi samkvæmt lögum um framkvæmd samnings um alþjóðaverslun með tegundir villtra dýra og plantna, sem eru í útrýmingarhættu, og reglna settra á grundvelli þeirra laga, skal greiða 24.500 krónur.
III. KAFLI
Eftirlit.
9. gr.
Vera eftirlitsmanns um borð í skipi.
Fiskistofa innheimtir gjald vegna veru veiðieftirlitsmanns um borð í skipi meðan þeir stunda eftirlitsstörf um borð í skipum, sem stunda veiðar á grundvelli laga um stjórn fiskveiða, laga um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, laga um fiskveiðar utan lögsögu Íslands eða annarra laga er kveða á um stjórn fiskveiða.
Gjald er innheimt fyrir hvern dag eða hluta úr degi, sem veiðieftirlitsmaður er að störfum um borð í skipi, sem hefur leyfi til að vinna afla um borð, sbr. 2. mgr. 7. gr. laga um Fiskistofu. Sama gjald er innheimt þegar ástæða þykir til að fylgjast sérstaklega með veiðum, sbr. 13. gr. laga um umgengni um nytjastofna sjávar, og þegar ákveðið hefur verið, að veiðieftirlitsmaður skuli vera um borð í skipi á grundvelli 16. gr. sömu laga.
Gjald fyrir hvern dag eða hluta úr degi, sem eftirlitsmaður er að störfum, sbr. 1. og 2. mgr, skal vera 113.700 krónur.
10.gr.
Eftirlit með löndun erlendis.
Vegna ferðar eftirlitsmanns til að fylgjast með löndun úr skipi erlendis skal greiða 95.600 krónur vegna starfa eftirlitsmanns fyrir hvern dag eða hluta úr degi, sem eftirlitsmaður er að störfum. Ferð skal greidd í samræmi við útlagðan kostnað Fiskistofu.
11. gr.
Úttekt á búnaði til vinnslu afla um borð í skipi.
Vegna umsóknar um leyfi til vinnslu afla um borð í skipi samkvæmt 5. gr. laga um vinnslu afla um borð í skipum skal greiða 159.800 krónur vegna úttektar Fiskistofu á búnaði til vinnslunnar um borð.
IV. KAFLI
Úthlutun aflaheimilda, flutningur o.fl.
12. gr.
Úthlutun aflamarks á grundvelli laga um stjórn fiskveiða.
Vegna úthlutunar aflamarks, sem fæst í skiptum á tilboðsmarkaði, samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um stjórn fiskveiða skal greiða 15.400 krónur. Vegna úthlutunar aflamarks á grundvelli 10. gr. laganna skal greiða 5.000 krónur vegna úthlutunar aflamarks á grundvelli 1. tölul. 1. mgr. 10. gr. og 40.400 krónur vegna úthlutunar aflamarks á grundvelli 2. tölul. 1. mgr. 10. gr. til stuðnings byggðarlögum.
13. gr.
Flutningur á aflamarki og aflahlutdeild.
Fyrir móttöku og úrvinnslu tilkynningar um flutning á aflamarki og krókaaflamarki sem berst með eyðublaði útgefnu af Fiskistofu samkvæmt 15. gr. laga um stjórn fiskveiða skal greiða 6.100 krónur.
Fyrir móttöku og úrvinnslu tilkynningar um flutning á aflamarki og krókaaflamarki sem framkvæmd er með rafrænu millifærslukerfi Fiskistofu samkvæmt 15. gr. laga um stjórn fiskveiða skal greiða 450 krónur.
Vegna þjónustusamnings um rafrænar tilkynningar um flutning aflamarks milli fiskiskipa skal greiða 49.000 krónur fyrir hvert fiskveiðiár.
Fyrir móttöku og úrvinnslu tilkynningar um flutning á aflahlutdeild ásamt staðfestingu Fiskistofu fyrir flutningnum samkvæmt 12. gr. laga um stjórn fiskveiða skal greiða 28.600 krónur.
V. KAFLI
Upplýsingavinnsla o.fl.
14. gr.
Aðgangur að gagnasöfnum og sérvinnsla upplýsinga.
Fyrir aðgang að gagnasöfnum Fiskistofu með gagnaveitu skal greiða árgjald, sem nemur 97.900 krónum. Óheimilt er að miðla upplýsingum, sem fengnar eru með slíkum aðgangi til þriðja aðila án samþykktar Fiskistofu, hvort sem miðlun upplýsinganna er gegn gjaldi eður ei.
Fyrir sérstakan aðgang að gagnasöfnum og sérvinnslu upplýsinga greiðist tímagjald samkvæmt tímavinnu sérfræðings í samræmi við 2. gr.
15. gr.
Ljósrit og afrit af skjölum.
Fyrir ljósrit eða afrit af skjölum samkvæmt beiðni á grundvelli upplýsingalaga nr. 140/2012 og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 gilda gjaldskrár, sem forsætisráðherra setur.
VI. KAFLI
Annað.
16. gr.
Endurskoðun gjaldskrár.
Gjaldskrá þessa skal endurskoða fyrir árslok 2024.
17. gr.
Lagastoð og gildistaka.
Gjaldskrá þessi, sem sett er samkvæmt 5. gr. laga nr. 36/1992 um Fiskistofu og öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi gjaldskrá Fiskistofu nr. 1404/2022.
Matvælaráðuneytinu, 20. desember 2023.
Svandís Svavarsdóttir.
Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.
|