Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 837/2019

Nr. 837/2019 9. september 2019

REGLUR
um breytingu á reglum nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands.

1. gr.

1. mgr. 100. gr. reglnanna breytist og orðast svo:

Nemandi skal ljúka 60 einingum af 1. námsári áður en hann hefur nám á 2. námsári eða ein­stökum þáttum þess. Undanþágur verða metnar út frá námsárangri. Nemandi skal hafa lokið a.m.k. 100 einingum af 1. og 2. námsári áður en hann hefur nám á 3. námsári eða einstökum þáttum þess.

2. gr.

Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar í samræmi við lög nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 9. september 2019.

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.


B deild - Útgáfud.: 24. september 2019