Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 328/2025

Nr. 328/2025 27. febrúar 2025

REGLUGERÐ
um (2.) breytingu á reglugerð nr. 543/2024 um áburðarvörur.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 10. tölul., svohljóðandi:

  1. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2024/1682 frá 4. mars 2024 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1009 að því er varðar að bæta við unnum húsdýraáburði sem efnisþáttaefniviði í ESB-áburðarvörur. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameigin­legu EES-nefndarinnar nr. 281/2024 frá 6. desember 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 20. febrúar 2025, bls. 862.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 27. febrúar 2025.

 

Hanna Katrín Friðriksson
atvinnuvegaráðherra.

Svava Pétursdóttir.


B deild - Útgáfud.: 28. mars 2025