1. gr.
Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:
|
1.3 |
Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2024/1804 frá 24. júní 2024 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2022/2319 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins á Haítí, sbr. fylgiskjal 1.3. |
|
2.3 |
Reglugerð ráðsins (ESB) 2024/1803 frá 24. júní 2024 um breytingu á reglugerð (ESB) 2022/2309 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins á Haítí, sbr. fylgiskjal 2.3. |
2. gr.
Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 2. september 2024.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.
Martin Eyjólfsson.
Fylgiskjöl. (sjá PDF-skjal)
|