1. gr.
Samkvæmt gjaldskrá þessari skal greiða eftirfarandi gjöld vegna byggingarleyfisumsókna og annarrar þjónustu sem byggingarfulltrúi veitir.
2. gr.
Byggingarleyfisgjald: |
|
Fast gjald vegna móttöku umsókna |
11.507 kr. |
Fyrir hvern rúmmetra í nýbyggingu eða viðbyggingu að hámarki 50.000 m³ |
116 kr./m³ |
Við endurnýjun byggingarleyfa skal greiða lágmarksgjald |
10.425 kr. |
|
|
Yfirferð séruppdrátta (burðarþols-, lagna- og séruppdrátta aðalhönnuða): |
|
Einbýlis-, par-, rað- og fjölbýlishús allt að 6 íbúðir |
87.320 kr. |
Fjölbýlishús, 6 íbúðir og fleiri |
169.210 kr. |
Af öðru húsnæði, þ.m.t. atvinnuhúsnæði og gripahús allt að 2.000 m³ brúttó |
130.205 kr. |
Af öðru húsnæði, þ.m.t. atvinnuhúsnæði og gripahús 2.000 m³ og stærri |
160.946 kr. |
Aðrar minni byggingar, s.s. viðbygging, bílgeymsla, anddyri, sólstofa o.fl. |
30.057 kr. |
|
|
Úttektir: |
|
Almenn úttekt |
7.125 kr. |
Lokaúttekt |
21.151 kr. |
Einbýlis-, par- og raðhús á einni hæð (10 útt. + lokaútt.) |
92.398 kr. |
Einbýlis-, par- og raðhús á tveimur hæðum (12 útt. + lokaútt.) |
106.646 kr. |
Af öðru húsnæði, þ.m.t. atvinnuhúsnæði og gripahús |
|
allt að 2.000 m³ brúttó |
126.017 kr. |
Af öðru húsnæði, þ.m.t. atvinnuhúsnæði og gripahús |
|
2.000 m³ og stærri |
170.990 kr. |
Fjölbýlishús, gjald, pr. matshluta |
156.743 kr. |
Aðrar minni byggingar, lágmark 3 úttektir + 1 lokaúttekt |
35.623 kr. |
Fokheldisvottorð m. úttekt |
17.143 kr. |
Stöðuúttektarvottorð (ófullgert húsnæði tekið í notkun) |
21.151 kr. |
|
|
Mælingar: |
|
Útsetning (1 fín útsetning og 1 eftirmæling) |
122.010 kr. |
|
|
Húsaleiguúttektir: |
|
Gjald pr. fermetra vegna íbúðarhúsnæðis |
|
Að hámarki kr. 14.125 fyrir íbúðarhúsnæði |
42 kr./m² |
Gjald pr. fermetra vegna atvinnuhúsnæðis |
23 kr./m² |
|
|
Veitingahús: |
|
Úttekt vegna rekstrarleyfis |
17.143 kr. |
|
|
Annað: |
|
Meistaraskipti |
10.332 kr. |
Byggingarstjóraskipti |
13.978 kr. |
Gjald fyrir hvert útkall byggingarfulltrúa þar sem verkið er ekki úttektarhæft |
8.459 kr. |
Stöðuleyfi fyrir gáma, hjólhýsi, ferðabíla, sumarhús o.fl. |
13.978 kr. |
Byggingarfulltrúa er heimilt í sérstökum tilfellum að innheimta gjald fyrir aðra þjónustu eða útköll, s.s. vettvangskönnun o.fl., enda hafi verið stofnað til sannanlegs kostnaðar vegna tilviksins |
10.910 kr. |
3. gr.
Gjald fyrir byggingarleyfisumsóknir greiðist við móttöku byggingarleyfisumsóknar.
Byggingarleyfisgjöld, gjöld fyrir yfirferð á séruppdráttum, gjöld fyrir úttektir og mælingar, skulu ákvarðast og gjaldfalla við útgáfu byggingarleyfis.
Önnur gjöld, svo sem vegna vottorða, húsaleiguúttekta, úttekta vegna vínveitingaleyfa og óþarfa úttekta, gjaldfalla við afhendingu tilheyrandi gagna.
Falli byggingarleyfi niður eða er afturkallað áður en framkvæmdir hefjast endurgreiðist byggingarleyfisgjald ekki.
Gjöldum samkvæmt gjaldskránni fylgir lögveð í viðkomandi fasteign eða lóð og má innheimta gjaldfallin gjöld með fjárnámi, sbr. 3. mgr. 53. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010.
4. gr.
Fjárhæðir í gjaldskrá þessari miðast við byggingarvísitölu í janúar 2018 (136,5) og skulu breytast eftir byggingarvísitölu í janúar ár hvert.
5. gr.
Gjaldskrá þessi er sett samkvæmt heimild í 51. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 og öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi gjaldskrá fyrir leyfisveitingar og þjónustu byggingarfulltrúans á Seltjarnarnesi, nr. 535/2005.
Samþykkt í bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar, 25. apríl 2018.
Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri.
|