Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1238/2023

Nr. 1238/2023 14. nóvember 2023

REGLUGERÐ
um innleiðingu framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1699 um breytingu á VIII. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 142/2011 að því er varðar fyrirmynd að heilbrigðisvottorði vegna tilflutninga á sendingum af aukaafurðum úr dýrum frá takmörkunarsvæðum sem komið var á fót til forvarna og varna gegn tilteknum skráðum sjúkdómum.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinnar ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftir­talin ESB-gerð gildi hér á landi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1699 frá 22. september 2021 um breytingu á VIII. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 142/2011 að því er varðar fyrirmynd að heilbrigðisvottorði vegna tilflutninga á sendingum af aukaafurðum úr dýrum frá takmörk­unarsvæðum sem komið var á fót til forvarna og varna gegn tilteknum skráðum sjúkdómum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 91/2022, frá 29. apríl 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 34, frá 25. maí 2022, bls. 35.

 

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli og II. kafla laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 13. og 29. gr. a laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, og 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 14. nóvember 2023.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Emilía Madeleine Heenen.


B deild - Útgáfud.: 23. nóvember 2023