1. gr.
Árlegt leyfisgjald fyrir að halda hund í íbúakjörnum í Hvalfjarðarsveit, sbr. 1. og 2. gr. samþykktar um hundahald í Hvalfjarðarsveit, er kr. 9.000. Þegar hundur er skráður er að auki greitt skráningargjald kr. 3.000.
2. gr.
Innifalið í leyfisgjaldi er ormahreinsun auk umsýslugjalds sveitarfélagsins.
3. gr.
Allur kostnaður vegna handsömunar hunda sem teknir eru lausir s.s. útkallskostnaður, bifreiðakostnaður og búrleiga skal greiddur af hlutaðeigandi leyfishafa eða umráðamanni hunds sé um leyfislausa hunda að ræða. Til viðbótar útlögðum kostnaði skal leyfishafi eða umráðamaður greiða föngunargjald að fjárhæð kr. 10.000.
4. gr.
Gjöldin miðast við vísitölu neysluverðs í október 2021 og uppfærast skv. breytingum í janúar ár hvert, fyrst í janúar 2023 og skulu gilda þannig næsta ár.
5. gr.
Gjalddagi er 1. maí og eindagi 1. júní. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga verði gjaldið ekki greitt í síðasta lagi á eindaga. Um vexti af vangreiddum gjöldum samkvæmt gjaldskrá þessari gilda almennar reglur. Um innheimtu gjalda fer samkvæmt ákvæðum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998.
6. gr.
Gjaldskrá þessi er samin og samþykkt af sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar með stoð í 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Gjaldskráin öðlast gildi 1. janúar 2022. Jafnframt fellur brott gjaldskrá sama efnis nr. 213/2008.
Samþykkt í sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar, 9. nóvember 2021.
Linda Björk Pálsdóttir sveitarstjóri.
|