1. gr.
Akstursþjónusta fyrir fatlað fólk er gjaldfrjáls frá kl. 8-17 alla virka daga í þéttbýliskjörnum Múlaþings.
2. gr.
Varðandi akstur sem er samþykktur á grundvelli 4. mgr. 7. gr. reglna Múlaþings um akstursþjónustu fyrir fatlað fólk er greitt á eftirfarandi hátt:
Í dreifbýli er gjald fyrir hverja ferð kr. 330. Að hámarki er greitt fyrir 10 ferðir á viku.
Varðandi sérstaka samninga sem félagsþjónustan gerir vegna ferðaþjónustu við einstaklinga er tekið mið af útreikningum FÍB, rekbif-jan-2023-a.pdf samkvæmt þeirra viðmiðunum eru greiddar 88,75 kr. á hvern ekinn km (flokkur A, B, C, D og E 1. lið).
3. gr.
Gjaldskrá þessi sem var samþykkt í sveitarstjórn Múlaþings 13. nóvember 2024 er sett með stoð í 29. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga og öðlast gildi 1. janúar 2025. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá fyrir akstursþjónustu fyrir fatlað fólk í Múlaþingi, nr. 1636/2022.
Egilsstöðum, 11. desember 2024.
Björn Ingimarsson sveitarstjóri.
|