Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 686/2024

Nr. 686/2024 17. maí 2024

REGLUGERÐ
um (4.) breytingu á reglugerð nr. 232/2023 um gildistöku framkvæmdarreglna framkvæmdastjórnarinnar um skráningar á landfræðilegum merkingum fyrir brennda drykki skv. 2. mgr. 30. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/787.

1. gr.

Við 2. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir töluliðir svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1762 frá 6. september 2023 um skráningu landfræðilegrar merkingar fyrir brenndan drykk skv. 2. mgr. 30. gr. reglu­gerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/787 („Sárréti kökénypálinka“). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 68/2024 frá 15. mars 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambands­ins nr. 34, frá 25. apríl 2024, bls. 745. 
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2624 frá 17. nóvember 2023 um skráningu landfræðilegrar merkingar fyrir brenndan drykk skv. 2. mgr. 30. gr. reglu­gerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/787 („Nagykörui cseresznyepálinka“). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndar­innar nr. 95/2024 frá 16. apríl 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 41, frá 16. maí 2024, bls. 259.

 

2. gr.

Tollyfirvöld hafa eftirlit með því að ákvæðum reglugerðar þessarar sé framfylgt í samræmi við 132. gr. tollalaga nr. 88/2005.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar hafa eftir­lit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, sbr. 29. gr. laga nr. 130/2014 um vernd afurðarheita sem vísa til uppruna, land­svæðis eða hefðbundinnar sérstöðu.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 40., sbr. 27. gr. laga um vernd afurðarheita sem vísa til upp­runa, landsvæðis eða hefðbundinnar sérstöðu nr. 130/2014 og 31. gr. a laga um matvæli nr. 93/1995 og öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 17. maí 2024.

 

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir.

Emilía Madeleine Heenen.


B deild - Útgáfud.: 7. júní 2024