Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 717/2012

Nr. 717/2012 23. ágúst 2012
REGLUGERÐ
um (1.) breytingu á reglugerð nr. 619/2012 um fjárhæð, álagningu og innheimtu veiðigjalda og þorskígildisstuðla fiskveiðiárið 2012/2013.

1. gr.

Við 5. gr. reglugerðarinnar kemur ný málsgrein, svohljóðandi:

Við álagningu sérstaks veiðigjalds, skv. 4. mgr., á hvern gjaldskyldan aðila, skal ákvarða hlutfallsskiptingu aflahlutdeilda í þorskígildiskílóum í uppsjávarveiðum og botnfiskveiðum, við upphafsúthlutun. Álagning skal fylgja þeim hlutföllum í þorskígildiskílóum talið.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 74/2012 um veiðigjöld og laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 23. ágúst 2012.

F. h. r.

Arndís Ármann Steinþórsdóttir.

Arnór Snæbjörnsson.

B deild - Útgáfud.: 24. ágúst 2012