Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 525/2023

Nr. 525/2023 30. maí 2023

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 900/2017 um tilkynningu atvika í almenningsflugi sem og greiningu á og eftirfylgni með þeim.

1. gr.

Við 3. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi málsgrein:

Ráðuneyti samgöngumála ber ábyrgð á framkvæmd 12. mgr. 16. gr. í reglugerð (ESB) nr. 376/2014 og getur launafólk og samningsbundið starfsfólk tilkynnt ráðuneytinu um meint brot á reglunum.

 

2. gr.

Við 5. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi málsgrein:

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2034 frá 6. október 2020 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 376/2014 að því er varðar sameiginlega evrópska áhættuflokkunarkerfið, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 68/2023 frá 17. mars 2023. Framseld reglugerð framkvæmda­stjórnarinnar (ESB) 2020/2034 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 30 frá 20. apríl 2023, bls. 460-469.

Framkvæmdareglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/2082 frá 26. nóvember 2021 um tilhögun um framkvæmd reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 376/2014 að því er varðar sameiginlega evrópska áhættuflokkunarkerfið, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 68/2023 frá 17. mars 2023. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/2082 er birt EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 30 frá 20. apríl 2023, bls. 470-478.

 

3. gr. 

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 131. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022 og öðlast þegar gildi.

 

Innviðaráðuneytinu, 30. maí 2023.

 

F. h. r.

Valgerður B. Eggertsdóttir.

Eggert Ólafsson.


B deild - Útgáfud.: 31. maí 2023