1. gr.
Gildissvið o.fl.
Gjaldskrá þessi gildir um greiðslu kostnaðar vegna sértækra aðgerða Fjármálaeftirlitsins skv. 7. gr. laga nr. 99/1999 um greiðslu kostnaðar við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. Gjaldskráin gildir einnig um þóknanir fyrir staðfestingu Fjármálaeftirlitsins á lýsingum, sbr. 3. mgr. 52. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti, endurskoðun tilboðsverðs yfirtökutilboðs skv. 8. mgr. 103. gr. sömu laga, og greiðslu kostnaðar við afgreiðslu umsókna um leyfi til útgáfu sértryggðra skuldabréfa, sbr. 30. gr. laga nr. 11/2008 um sértryggð skuldabréf.
Fjármálaeftirlitið upplýsir aðila um gjaldtöku samkvæmt gjaldskrá þessari.
2. gr.
Tímagjald.
Fyrir afgreiðslu á málum samkvæmt gjaldskrá þessari skal greiða tímagjald sem nemur 15.000 krónum fyrir vinnu starfsmanna Fjármálaeftirlitsins og 20.000 krónum fyrir aðkeypta sérfræðiþjónustu, nema annað leiði af einstökum ákvæðum gjaldskrárinnar.
Gjaldið skal greitt samkvæmt reikningi sem Fjármálaeftirlitið gefur út við lok afgreiðslu máls ásamt tímaskýrslu um fjölda vinnustunda sem stofnunin hefur varið í afgreiðsluna. Fjármálaeftirlitinu er þó heimilt á hvaða stigi máls sem er að fara fram á greiðslu áfallins kostnaðar.
3. gr.
Nauðsynlegt umframeftirlit.
Eftirlitsskyldir aðilar skulu greiða fyrir nauðsynlegt umframeftirlit Fjármálaeftirlitsins, samkvæmt sérstakri ákvörðun stjórnar stofnunarinnar, sbr. 1. mgr. 7. gr. laga nr. 99/1999, þ.m.t. kostnað vegna aðkeyptrar sérfræðiþjónustu, ferðalaga og skipunar sérfræðings skv. 2. mgr. 9. gr. laga nr. 87/1998 um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi.
Komi til greina að leggja kostnað á eftirlitsskyldan aðila vegna umframeftirlits skv. 1. mgr. upplýsir Fjármálaeftirlitið um tímagjald starfsmanna, annarrar aðkeyptrar sérfræðiþjónustu og annan áætlaðan kostnað.
Kostnaðurinn skal greiddur samkvæmt reikningi sem Fjármálaeftirlitið gefur út að loknu umframeftirliti. Reikningnum skulu fylgja tímaskýrslur um fjölda vinnustunda sem Fjármálaeftirlitið hefur varið í umframeftirlitið og upplýsingar um útlagðan kostnað, s.s. vegna aðkeyptrar sérfræðiþjónustu, ferðalaga og skipunar sérfræðings.
4. gr.
Afgreiðsla umsóknar um starfsleyfi.
Fastagjöld fyrir afgreiðslu umsókna um starfsleyfi eftirlitsskyldra aðila skulu vera í samræmi við þær fjárhæðir sem tilgreindar eru í 2. mgr. 7. gr. laga nr. 99/1999.
Gjaldið skal greitt við afhendingu umsóknar til Fjármálaeftirlitsins og er að jafnaði óendurkræft þótt umsókn sé dregin til baka eða synjað sé um útgáfu starfsleyfis.
5. gr.
Afgreiðsla og skráning sértækrar staðfestingar og mats.
Fyrir afgreiðslu og skráningu eftirfarandi sértækra staðfestinga og mats, sem leiða af starfsemi Fjármálaeftirlitsins, en teljast ekki þáttur í reglubundnu eftirliti, sbr. 3. mgr. 7. gr. laga nr. 99/1999, skulu eftirlitsskyldir aðilar, og eftir atvikum aðrir aðilar, greiða tímagjald skv. 2. gr. gjaldskrárinnar:
- Umsókn um aukið starfsleyfi (viðbótarstarfsleyfi) eða breytingu á tegund starfsleyfis.
- Umsókn um samruna, skiptingu eða yfirfærslu rekstrarhluta, sbr. XII. kafla laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og VII. kafla laga nr. 100/2016 um vátryggingastarfsemi.
- Tilkynning um virkan eignarhlut, sbr. VI. kafla laga nr. 161/2002, X. kafla laga nr. 100/2016, II. kafla laga nr. 120/2011 um greiðsluþjónustu og III. kafla laga nr. 17/2013 um útgáfu og meðferð rafeyris.
- Tilkynning vegna fyrirhugaðrar veitingar þjónustu erlendis án stofnunar útibús, með stofnun útibús eða í gegnum umboðsaðila, sbr. V. kafla laga nr. 161/2002, XII. kafla laga nr. 32/2005 um miðlun vátrygginga, XX. kafla laga nr. 100/2016, II. kafla laga nr. 120/2011 og III. kafla laga nr. 17/2013.
- Umsókn rekstrarfélags um staðfestingu verðbréfa- eða fjárfestingarsjóðs, sbr. II. og III. kafla laga nr. 128/2011 um verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði.
- Tilkynning um fyrirhugaða markaðssetningu hlutdeildarskírteina verðbréfasjóðs erlendis, sbr. II. kafla laga nr. 128/2011.
- Umsókn fjármálafyrirtækis um heimild til að varðveita fjármálagerninga á safnreikningi, sbr. II. kafla laga nr. 108/2007.
- Umsókn um heimild fyrir einkaumboðsmann til að starfa í þágu fjármálafyrirtækis, sbr. II. kafla laga nr. 108/2007.
- Umsókn um undanþágu frá tilboðsskyldu, sbr. X. kafla laga nr. 108/2007.
- Umsókn um staðfestingu tilboðsyfirlits, sbr. XI. kafla laga nr. 108/2007.
- Beiðni um að send verði tilkynning til lögbærra yfirvalda á Evrópska efnahagssvæðinu á staðfestri lýsingu og viðauka við lýsingu, sbr. 11. gr. reglugerðar nr. 837/2013 um almenn útboð verðbréfa að verðmæti jafnvirðis 5.000.000 evra í íslenskum krónum eða meira og töku verðbréfa til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði.
- Umsókn um heimild til að beita innramatsaðferð við mat á áhættuþáttum í útreikningi á áhættugrunni skv. 5. mgr. 84. gr. e laga nr. 161/2002.
- Umsókn um skráningu sem lánveitandi eða lánamiðlari, sbr. XIII. og XIV. kafla laga nr. 118/2016 um fasteignalán til neytenda.
- Beiðni um mat á því hvort skjal teljist sambærilegt lýsingu, sbr. b- og c-lið 2. tölul. 1. mgr. 50. gr. laga nr. 108/2007 og c- og d-lið 3. tölul. 1. mgr. 50. gr. laga nr. 108/2007.
- Samþykki vegna notkunar eigin stika vátryggingafélags, sbr. 3. mgr. 100. gr. laga nr. 100/2016.
- Umsókn um heimild til að nota eigið líkan við útreikning á gjaldþolskröfu, sbr. 104. gr. laga nr. 100/2016 um vátryggingastarfsemi og 21. gr. laga nr. 60/2017 um vátryggingasamstæður.
Sé beiðni samkvæmt þessari grein hafnað eða hún dregin til baka eftir að afgreiðsla Fjármála-eftirlitsins er hafin skal greiða áfallinn kostnað í samræmi við fjölda vinnustunda sem stofnunin hefur varið í afgreiðsluna og kostnað vegna aðkeyptrar sérfræðiþjónustu.
6. gr.
Staðfesting lýsingar.
Fyrir staðfestingu Fjármálaeftirlitsins á lýsingu, sbr. 3. mgr. 52. gr. laga nr. 108/2007, og eftir atvikum viðauka við lýsingu, sbr. 46. gr. sömu laga, skal greiða tímagjald skv. 2. gr. gjaldskrárinnar.
Sé hætt við útboð eða töku verðbréfa til viðskipta eftir að afgreiðsla á staðfestingu lýsingar er hafin skal greiða áfallinn kostnað í samræmi við fjölda vinnustunda sem Fjármálaeftirlitið hefur varið í afgreiðsluna og kostnað vegna aðkeyptrar sérfræðiþjónustu.
7. gr.
Endurskoðun tilboðsverðs yfirtökutilboðs.
Tilboðsgjafi eða útgefandi skal greiða fyrir endurskoðun tilboðsverðs yfirtökutilboðs, skv. 8. mgr. 103. gr. laga nr. 108/2007. Fyrir vinnu starfsmanna Fjármálaeftirlitsins skal greiða tímagjald skv. 2. gr. gjaldskrárinnar. Sé verðmat framkvæmt af utanaðkomandi matsaðila skal tilboðsgjafi eða útgefandi greiða fyrir verðmatið samkvæmt reikningi matsaðila, í samræmi við 2. gr. gjaldskrárinnar.
Dragi tilboðsgjafi eða útgefandi ósk sína um endurskoðun tilboðsverðs yfirtökutilboðs til baka eftir að endurskoðun er hafin skal viðkomandi greiða áfallinn kostnað í samræmi við fjölda vinnustunda sem Fjármálaeftirlitið hefur varið í afgreiðsluna og kostnað vegna utanaðkomandi matsaðila.
8. gr.
Afgreiðsla umsóknar um leyfi til útgáfu sértryggðra skuldabréfa.
Fyrir afgreiðslu umsóknar um leyfi til útgáfu sértryggðra skuldabréfa, sbr. 30. gr. laga nr. 11/2008, skal greiða tímagjald skv. 2. gr. gjaldskrárinnar.
Sé umsókn hafnað eða hún dregin til baka eftir að afgreiðsla umsóknar um leyfi til útgáfu sértryggðra skuldabréfa er hafin skal greiða áfallinn kostnað í samræmi við fjölda vinnustunda sem Fjármálaeftirlitið hefur varið í afgreiðsluna og kostnað vegna aðkeyptrar sérfræðiþjónustu.
9. gr.
Gildistaka o.fl.
Gjaldskrá þessi er sett á grundvelli 4. mgr. 7. gr. laga nr. 99/1999, 3. mgr. 52. gr. og 8. mgr. 103. gr. laga nr. 108/2007 og 30. gr. laga nr. 11/2008. Gjaldskráin hefur verið samþykkt af stjórn Fjármálaeftirlitsins og tekur þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá Fjármálaeftirlitsins nr. 161/2017.
Fjármálaeftirlitinu, 18. október 2017.
Unnur Gunnarsdóttir.
Anna M. Karlsdóttir.
|