Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur þann 26. ágúst 2015 í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga samþykkt tillögu að breytingu á deiliskipulagi Krikahverfis varðandi lóðina Litlakrika 3-5. Breytingin felst í því að á lóðina komi þríbýlishús í stað parhúss. Ofangreind breyting á deiliskipulagi hefur hlotið tilskilda meðferð samkvæmt skipulagslögum og öðlast hún þegar gildi.
F.h. Mosfellsbæjar, 30. október 2015,
Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi.
|