1. gr.
Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi töluliðir bætist við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:
|
1.1. |
Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2019/29 frá 9. janúar 2019 um breytingu ákvörðunar (SSUÖ) 2017/1775 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Malí, sbr. fylgiskjal 1.1. |
|
1.2. |
Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2019/1216 frá 17. júlí 2019 um breytingu ákvörðunar (SSUÖ) 2017/1775 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Malí, sbr. fylgiskjal 1.2. |
|
1.3. |
Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2020/9 frá 7. janúar 2020 um breytingu ákvörðunar (SSUÖ) 2017/1775 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Malí, sbr. fylgiskjal 1.3. |
|
1.4. |
Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2020/118 frá 27. janúar 2020 um breytingu ákvörðunar (SSUÖ) 2017/1775 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Malí, sbr. fylgiskjal 1.4. |
|
1.5. |
Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2021/2208 frá 13. desember 2021 um breytingu á ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/1775 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Malí, sbr. fylgiskjal 1.5. |
|
1.6. |
Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/157 frá 4. febrúar 2022 um breytingu á ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/1775 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Malí, sbr. fylgiskjal 1.6. |
|
1.7. |
Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/2187 frá 8. nóvember 2022 um breytingu á ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/1775 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Malí, sbr. fylgiskjal 1.7. |
|
2.1. |
Framkvæmdarreglugerð ráðsins (SSUÖ) 2020/8 frá 7. janúar 2020 um breytingu á reglugerð ráðsins (SSUÖ) 2017/1770 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Malí, sbr. fylgiskjal 2.1. |
|
2.2. |
Framkvæmdarreglugerð ráðsins (SSUÖ) 2020/116 frá 27. janúar 2020 um breytingu á reglugerð ráðsins (SSUÖ) 2017/1770 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Malí, sbr. fylgiskjal 2.2. |
|
2.3. |
Reglugerð ráðsins (SSUÖ) 2021/2201 frá 13. desember 2021 um breytingu á reglugerð ráðsins (SSUÖ) 2017/1770 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Malí, sbr. fylgiskjal 2.3. |
|
2.4. |
Framkvæmdarreglugerð ráðsins (SSUÖ) 2022/156 frá 4. febrúar 2022 um breytingu á reglugerð ráðsins (SSUÖ) 2017/1770 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Malí, sbr. fylgiskjal 2.4. |
|
2.5. |
Framkvæmdarreglugerð ráðsins (SSUÖ) 2022/2179 frá 8. nóvember 2022 um breytingu á reglugerð ráðsins (SSUÖ) 2017/1770 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Malí, sbr. fylgiskjal 2.5. |
2. gr.
Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 16. desember 2022.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.
Fylgiskjöl. (sjá PDF-skjal)
|