Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1080/2024

Nr. 1080/2024 11. september 2024

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 456/1994 um fuglaveiðar og nýtingu hlunninda af villtum fuglum.

1. gr.

5. tl. 2. mgr. 8. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Landinu er skipt í sex veiðisvæði fyrir rjúpnaveiði, sbr. kort í viðauka II við reglugerð þessa en landupplýsingar og hnit eru aðgengileg á vefsíðu Umhverfisstofnunar. Árið 2024 er rjúpnaveiði heimil frá og með föstudögum til og með þriðjudögum innan hvers veiðisvæðis með eftirfarandi hætti:

a. Austurland 25. október – 22. desember.
b. Norðausturland 25. október – 19. nóvember.
c. Norðvesturland 25. október – 19. nóvember.
d. Suðurland 25. október – 19. nóvember.
e. Vesturland 25. október – 19. nóvember.
f. Vestfirðir 25. október – 26. nóvember.

Rjúpnaveiðar eru þó alltaf óheimilar á friðuðu svæði, sbr. 9. gr.

 

2. gr.

Við reglugerðina bætist viðauki II, Veiðisvæði fyrir rjúpnaveiði, sem birtur er með reglugerð þessari.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 7. og 17. gr. laga nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 11. september 2024.

 

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Stefán Guðmundsson.

 

VIÐAUKI
(sjá PDF-skal)


B deild - Útgáfud.: 25. september 2024