1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 8. tl., svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1110 frá 6. júní 2023 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2019/1793 um tímabundna aukningu á opinberu eftirliti og neyðarráðstafanir sem gilda um komu tiltekinna vara frá tilteknum þriðju löndum inn í Sambandið og um framkvæmd reglugerða Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625 og (EB) nr. 178/2002.
2. gr.
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1110 er birt á ensku í C-deild Stjórnartíðinda, sem fylgiskjal við auglýsingu nr. 3/2024.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli, lögum nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 18. janúar 2024.
Svandís Svavarsdóttir.
|