Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 549/2021

Nr. 549/2021 29. apríl 2021

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um flutning á hættulegum farmi á landi, nr. 1077/2010, með síðari breytingum.

1. gr.

Við 2. mgr. 38. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, svohljóðandi:

  1. Framseld tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2020/1833/ESB frá 2. október 2020 um breyt­ingu á viðaukunum við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2008/68/EB að því er varðar aðlögun þeirra að framförum á sviði vísinda og tækni, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 61/2021 frá 5. febrúar 2021 um breytingu á viðauka XIII við EES-samn­inginn, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 22, frá 25. mars 2021, bls. 635-636.

 

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 4. mgr. 69. gr. og 4. mgr. 81. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

 

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 29. apríl 2021.

 

F. h. r.

Ólafur Kr. Hjörleifsson.

Ástríður Scheving Thorsteinsson.


B deild - Útgáfud.: 14. maí 2021