1. gr.
B-liður 47. gr. samþykktarinnar orðast svo:
Til fjögurra ára. Sveitarstjórn kýs fimm fulltrúa og jafnmarga til vara nema annað sé tekið fram, í eftirfarandi ráð og nefndir, sem kosnir eru á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar sveitarstjórnar og er kjörtímabil þeirra hið sama og sveitarstjórnar. Sveitarstjórn kýs ráðunum formann og varaformann.
- Kjörstjórnir. Sveitarstjórn kýs á fyrsta fundi sínum þrjá fulltrúa og jafnmarga til vara í yfirkjörstjórn til fjögurra ára skv. 17. gr. kosningalaga nr. 112/2021. Þá getur sveitarstjórn kosið þrjá menn og þrjá til vara í undirkjörstjórn eftir fjölda kjördeilda.
- Íþrótta- og æskulýðsráð fer með íþrótta- og æskulýðsmál samkvæmt lögum og reglugerðum þar um, ásamt öðrum þeim verkefnum sem ráðinu eru falin með erindisbréfi.
- Menningarráð fer með málefni safna og menningarmál samkvæmt lögum og reglugerðum þar um, ásamt öðrum þeim verkefnum sem ráðinu eru falin með erindisbréfi. Sveitarstjórn kýs þrjá fulltrúa og jafnmarga til vara.
- Fræðsluráð fer með verkefni leikskóla, grunnskóla, tónlistarskóla og framhaldsskóla samkvæmt lögum og reglugerðum þar um ásamt öðrum þeim verkefnum sem ráðinu eru falin með erindisbréfi.
- Félagsmálaráð fer með verkefni sveitarfélagsins á grundvelli laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, þjónustuhóp aldraðra og málefni fatlaðs fólks samkvæmt lögum og reglugerðum og samningum þar um ásamt öðrum þeim verkefnum sem ráðinu eru falin með erindisbréfi.
- Skipulagsráð fer með byggingar- og skipulagsmál samkvæmt lögum og reglugerðum þar um ásamt öðrum þeim verkefnum sem ráðinu eru falin með erindisbréfi.
- Umhverfis- og dreifbýlisráð fer með brunavarnir og brunamál, almannavarnir, hreinlætismál, umferðarmál, umhverfismál, vinnuskóla, gróður- og náttúruverndarmál samkvæmt lögum og reglugerðum þar um. Jafnframt fer umhverfis- og dreifbýlisráð með stjórn og eftirlit með dýrahaldi, framkvæmd fjallskila, afréttamál, hagagöngu, eyðingu refa, minka og vargfugls og sjúkdómavarnir samkvæmt lögum og reglugerðum þar um ásamt öðrum þeim verkefnum sem ráðinu eru falin með erindisbréfi.
- Veitu- og hafnaráð fer með málefni hitaveitu, vatnsveitu, fráveitu, gagnaveitu og hafna samkvæmt lögum og reglugerðum þar um ásamt öðrum þeim verkefnum sem ráðinu eru falin með erindisbréfi.
2. gr.
Samþykkt þessi sem sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar hefur sett skv. ákvæðum 9. og 18. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 16. ágúst 2022.
F. h. r.
Aðalsteinn Þorsteinsson.
|