1. gr.
Við 1. mgr. 25. gr. a reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, svohljóðandi:
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1634 frá 5. júní 2023 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/631 um að setja staðla um frammistöðu vegna losunar koltvísýrings fyrir nýjar fólksbifreiðar og ný, létt atvinnuökutæki, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 296/2023, 27. október 2023, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 85, frá 23. nóvember 2023, bls. 159-168.
2. gr.
Viðauki IV við reglugerðina breytist þannig:
Undir fyrirsögninni „bifreiðir og eftirvagnar“:
Undir tölulið 45zzl við reglugerð nr. 582/2011/ESB (í reitina „síðari viðbætur“, „Stjórnartíðindi EB“ og „EES-birting“), kemur:
2022/2383/ESB |
L 315, 7.12.2022 |
Birt í EES-viðbæti nr. 63, frá 7. september 2023, bls. 56-63. |
3. gr.
Með reglugerð þessari eru innleiddar reglugerðir: 2023/1634/ESB og 2022/2383/ESB.
4. gr.
Lagastoð og gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 69. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 28. nóvember 2023.
F. h. r.
Valgerður B. Eggertsdóttir.
|