Vegna neyðarástands af völdum COVID-19 farsóttar, hefur samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra tekið ákvörðun um að framlengja heimild allra sveitarstjórna, sem veitt var með auglýsingu í Stjórnartíðindum nr. 230/2020, til að víkja tímabundið frá eftirfarandi skilyrðum sveitarstjórnarlaga til að tryggja starfhæfi sitt og til að auðvelda ákvarðanatöku við stjórn sveitarfélags, með vísan til VI. bráðabirgðaákvæðis sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011:
- Að nota fjarfundarbúnað á fundum sveitarstjórnar og nefnda sveitarfélagsins, án þess að fjarlægðir séu miklar, samgöngur innan sveitarfélags séu erfiðar eða mælt sé fyrir um notkun slíks búnaðar í samþykktum sveitarfélagsins.
- Að ákveða að engin takmörk verði á fjölda fundarmanna sem taka þátt í fundum sveitarstjórnar og nefnda sveitarfélagsins með fjarfundarbúnaði.
- Að ákveða að valdsvið nefnda verði með öðrum hætti en mælt er fyrir um í samþykktum sveitarfélagsins.
- Að fela fastanefnd eða einstökum starfsmönnum sveitarfélagsins fullnaðarafgreiðslu tiltekinna mála sem varða ekki verulega fjárhag sveitarfélags og lög eða eðli máls mæla ekki sérstaklega gegn, þrátt fyrir að kveðið sé á um annað í samþykktum sveitarfélagsins.
- Að ákveða að staðfesting fundargerða sveitarstjórnar verði með öðrum hætti en mælt er fyrir um í 10. og 11. gr. auglýsingar um leiðbeiningar um ritun fundargerða sveitarstjórna, nr. 22/2013.
Um er að ræða skilyrði samkvæmt 3. mgr. 17. gr., 5. mgr. 35. gr., 1. mgr. 40. gr., 1. og 2. mgr. 42. gr. sveitarstjórnarlaga og 5. gr. auglýsingar um leiðbeiningar um notkun fjarfundarbúnaðar á fundum sveitarstjórna, nr. 1140/2013.
Sveitarstjórnum er heimilt að taka þessar ákvarðanir á fundi þar sem allir fundarmenn taka þátt í fundinum í gegnum fjarfundarbúnað.
Heimild þessi tekur gildi 31. desember 2020 og gildir til 31. apríl 2021.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 16. desember 2020.
Sigurður Ingi Jóhannsson.
|