Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1603/2024

Nr. 1603/2024 12. desember 2024

REGLUGERÐ
um innheimtu þinggjalda á árinu 2025.

1. gr.

Þinggjöld sem leggja skal á tekjur ársins 2024 og ekki hafa verið innheimt í staðgreiðslu skulu greidd á tíu gjalddögum á árinu 2025. Eru gjalddagar fyrsti dagur hvers mánaðar nema í janúar og í þeim mánuði sem álagningu lýkur samkvæmt ákvörðun fjármála- og efnahagsráðherra. Eindagi er mánuði eftir gjalddaga, sbr. þó 2. mgr. 4. gr.

 

2. gr.

Þar til álagning ársins 2025 liggur fyrir skal hver skattaðili greiða fyrir fram upp í álagningu ársins. Fyrirframgreiðslan skal á hverjum gjalddaga nema 8,5% af þinggjöldum ársins 2024. Við skiptingu á fjárhæðum í fyrirframgreiðslu og eftirstöðva álagningar skal við það miðað að ekki sé til inn­heimtu lægri fjárhæð en 5.000 kr. á hverjum gjalddaga.

Þau þinggjöld sem lögaðilar skulu greiða í fyrirframgreiðslu eru tekjuskattur, sérstakur fjár­sýslu­skattur og sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki.

 

3. gr.

Árlegir gjalddagar eftirtalinna gjalda eru sem hér segir:

Gjalddagar einstaklinga vegna sérstaks gjalds til Ríkisútvarpsins ohf. eru 1. júní, 1. júlí og 1. ágúst. Gjalddagi vegna gjalds í framkvæmdasjóð aldraðra, slysatryggingar vegna heimilisstarfa, ógreidds fjársýsluskatts og ógreidds tryggingagjalds, sem ríkisskattstjóri ákvarðar vegna hlunninda, og fjársýsluskatts og tryggingagjalds, sem undanþegið er staðgreiðslu skal vera einn, þ.e. 1. júní.

Gjalddagi lögaðila vegna sérstaks gjalds til Ríkisútvarpsins ohf., ógreidds fjársýsluskatts og ógreidds tryggingagjalds, sem ríkisskattstjóri ákvarðar vegna hlunninda, og fjársýsluskatts og trygg­ingagjalds, sem undanþegið er staðgreiðslu er 1. nóvember.

 

4. gr.

Hafi skattar, þ.e. fyrirframgreiðsla og álögð gjöld, ekki verið greiddir innan mánaðar frá gjald­daga skal greiða ríkissjóði dráttarvexti af því sem gjaldfallið er frá gjalddaga.

Vanskil skattaðila að hluta á álögðum sköttum og gjöldum valda því að allir skattar skattaðilans falla í eindaga mánuði eftir gjalddaga vangoldinnar greiðslu, en þó ekki fyrr en mánuði eftir að álagn­ingu er lokið.

 

5. gr.

Heimilt er skattaðila að sækja um lækkun á þeirri fjárhæð þinggjalda, sem honum hefur verið gert að greiða fram að álagningu ársins 2025 skv. 2. gr. Umsókn um slíka lækkun skal senda ríkis­skattstjóra til ákvörðunar.

 

6. gr.

Ríkisskattstjóri skal að jafnaði ekki taka til greina umsókn skattaðila, sbr. 5. gr., nema þeir skatt­stofnar sem um ræðir fyrir tekjuárið 2024 séu meira en 25% lægri en þeir voru á tekjuárinu 2023. Frá þessari reglu má þó víkja ef sérstaklega stendur á að mati ríkisskattstjóra.

Ríkisskattstjóra er heimilt að setja nánari reglur um ákvörðun á takmörkun greiðsluskyldu og önnur atriði varðandi framkvæmd þessarar greinar.

 

7. gr.

Ákvörðun varðandi umsókn um lækkun á fyrirframgreiðslu skal ríkisskattstjóri tilkynna skatt­aðila eins fljótt og unnt er og ef fallist er á umsókn skal niðurstaða einnig tilkynnt innheimtuaðila.

 

8. gr.

Um greiðslur þinggjalda á árinu 2025 fer að öðru leyti samkvæmt ákvæðum XIII. kafla laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, og laga um innheimtu opinberra skatta og gjalda, nr. 150/2019.

 

9. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 112. og 121. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, öðlast þegar gildi.

 

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 12. desember 2024.

 

F. h. r.

Helga Jónsdóttir.

Ingibjörg Helga Helgadóttir.


B deild - Útgáfud.: 27. desember 2024