Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1/2023

Nr. 1/2023 15. febrúar 2023

AUGLÝSING
um innleiðingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/174 um breytingar á framkvæmdarreglugerð framkvæmda­stjórnarinnar (ESB) 2019/1793 um tímabundna aukningu á opinberu eftirliti og neyðarráðstafanir sem gilda um komu tiltekinna vara frá tilteknum þriðju löndum inn í Sambandið, um framkvæmd reglugerða Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625 og (EB) nr. 178/2002.

1. gr.

Eftirfarandi reglugerð öðlast gildi hér á landi með reglugerð nr. 146/2023 um (7.) breytingu á reglugerð nr. 507/2020 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar fram­kvæmda­stjórnarinnar (ESB) 2019/1793 um tímabundna aukningu á opinberu eftirliti og neyðar­ráðstafanir sem gilda um komu tiltekinna vara frá tilteknum þriðju löndum, sem birt er í B-deild Stjórnartíðinda:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/174 sem breytir framkvæmdar­reglugerð (ESB) 2019/1793 um um tímabundna aukningu á opinberu eftirliti og neyðar­ráðstafanir sem gilda um komu tiltekinna vara frá tilteknum þriðju löndum inn í Sambandið, um framkvæmd reglugerða Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625 og (EB) nr. 178/2002. Reglugerðin er birt á ensku í fylgiskjali með auglýsingu þessari.

 

2. gr.

Auglýsing þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru og 29. gr. b laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, öll með síðari breytingum.

Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.

 

Matvælaráðuneytinu, 15. febrúar 2023.

 

F. h. r.

Benedikt Árnason.

Margrét Björk Sigurðardóttir.

 

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


C deild - Útgáfud.: 15. febrúar 2023