I. Breytingar á reglum nr. 877/2018.
1. gr.
Í stað „1. nóvember 2018“ í 5. gr., um gildistöku o.fl., kemur: 1. febrúar 2019.
II. Breytingar á reglum nr. 492/2001.
2. gr.
Eftirfarandi ákvæði til bráðabirgða bætist við reglurnar, sem verður ný 2. mgr. 7. gr. reglnanna, svohljóðandi:
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 4. gr. er ríkissjóði heimilt að gefa út verðtryggð ríkisverðbréf þótt minna en fimm ár séu til gjalddaga.
III. Gildistaka o.fl.
3. gr.
Reglur þessar sem settar eru samkvæmt heimild í 1. og 2. mgr. 15. gr. laga nr. 38 frá 26. maí 2001, og sem hafa verið samþykktar af fjármála- og efnahagsráðherra, sbr. 1. mgr. 15. gr. sömu laga; öðlast þegar gildi.
Reykjavík, 29. október 2018.
Seðlabanki Íslands,
|
Rannveig Sigurðardóttir aðstoðarseðlabankastjóri. |
Sigríður Logadóttir aðallögfræðingur. |
Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal)
|