Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1584/2024

Nr. 1584/2024 9. desember 2024

AUGLÝSING
frá ríkisskattstjóra um bústofn til eignar í skattframtali 2025.

Eignamat í árslok.

Samkvæmt 2. tl. 73. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skal telja búpening til eignar með verði er ríkisskattstjóri ákveður til eins árs í senn. Samkvæmt 1. gr. reglugerðar nr. 213/2001, um skatta­lega meðferð á bústofnsbreytingu og kaupverði lífdýra í landbúnaði, skal færa bústofn allan í árs­byrjun á bústofnsskýrslu með því verði sem ríkisskattstjóri ákveður, sbr. framangreint.

Ríkisskattstjóri hefur ákveðið eftirfarandi mat á búpeningi í árslok 2024, álagningarárið 2025, vegna bústofnsskýrslu fyrir það álagningarár:

  kr.    
Mjólkurkýr 162.000
Holdakýr og naut 170.000
Kvígur, 1½ árs og eldri 142.000
Geldneyti 84.000
Kálfar, yngri en ½ árs 16.000
Ær og sauðir 9.600
Hrútar 22.000
Gemlingar 14.000
Geitur 12.000
Hross á 14. vetri og eldri 27.000
Hross á 5. – 13. vetri 65.000
Fulltamin reiðhross á 5. – 13. vetri 280.000
Önnur nýtanleg reiðhross 150.000
Verðlaunahross á 5. – 13. vetri 450.000
Kynbótahestar á 5. – 13. vetri 600.000
Verðlaunaðir kynbótahestar á 5. – 13. vetri 750.000
Tryppi á 2. – 4. vetri 21.000
Folöld 15.000
Hænsni, eldri en 6 mánaða 1.170
Varphænsni 6 mánaða og yngri 800
Kjúklingar 345
Endur 1.220
Gæsir 2.430
Kalkúnar 3.650
Gyltur 55.000
Geltir 80.000
Grísir 15.000
Kanínur 5.800
Minkar: Karldýr 5.400
  Kvendýr 3.600
Önnur ótilgreind dýr nýtt í rekstri 0

 

Reykjavík, 9. desember 2024.

 

Snorri Olsen ríkisskattstjóri.


B deild - Útgáfud.: 23. desember 2024