Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 764/2024

Nr. 764/2024 19. júní 2024

REGLUGERÐ
um (10.) breytingu á reglugerð nr. 507/2020 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1793 um tímabundna aukningu á opinberu eftirliti og neyðarráðstafanir sem gilda um komu tiltekinna vara frá tilteknum þriðju löndum.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 10. tl., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1662 frá 11. júní 2024 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2019/1793 um tímabundna aukningu á opinberu eftirliti og neyðarráðstafanir sem gilda um komu tiltekinna vara frá tilteknum þriðju löndum inn í Sambandið, um framkvæmd reglugerða Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625 og (EB) nr. 178/2002.

 

2. gr.

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1662 er birt á ensku í C-deild Stjórnar­tíðinda, sem fylgiskjal við auglýsingu nr. 27/2024.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli, lögum nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 19. júní 2024.

 

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir.

Svava Pétursdóttir.


B deild - Útgáfud.: 28. júní 2024