Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1341/2024

Nr. 1341/2024 26. nóvember 2024

REGLUR
um mat á vaxtaáhættu vegna viðskipta utan veltubókar.

1. gr.

Gildissvið.

Reglur þessar gilda um fjármálafyrirtæki samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002.

 

2. gr.

Mat á vaxtaáhættu.

Um álagssviðsmyndir í tengslum við eftirlit, sameiginlegar forsendur líkana og stika til að reikna út hagrænt virði eigin fjár og hvað telst mikil lækkun á hreinum vaxtatekjum, sbr. 5. mgr. 81. gr. laga um fjármálafyrirtæki, fer samkvæmt reglugerð (ESB) 2024/856, sbr. 3. gr.

Við mat á áhættu sem leiðir af hugsanlegum vaxtabreytingum sem hafa áhrif bæði á hagrænt virði eigin fjár og hreinar vaxtatekjur af viðskiptum utan veltubókar, eins og það er reiknað skv. 78. gr. f laga um fjármálafyrirtæki, skal fjármálafyrirtæki taka mið af reglugerð (ESB) 2024/857, sbr. 3. gr.

 

3. gr.

Innleiðing reglugerða.

Með vísan til 2. gr. gilda eftirtaldar reglugerðir hér á landi:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/856 frá 1. desember 2023 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2013/36/ESB að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla sem tilgreina áfallasviðsmyndir í tengslum við eftirlit, sameiginlegar forsendur líkana og stika og hvað telst mikil lækkun, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun EES-nefndarinnar nr. 214/2024 frá 23. september 2024.
  2. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/857 frá 1. desember 2023 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2013/36/ESB að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla sem tilgreina staðalaðferð og einfaldaða staðalaðferð til að meta áhættu sem leiðir af hugsanlegum breytingum á vöxtum sem hafa áhrif bæði á hagrænt virði eigin fjár og hreinar vaxtatekjur af starfsemi stofnunar utan veltubókar, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun EES-nefndarinnar nr. 214/2024 frá 23. september 2024.

Með vísan til heimildar í ákvæði til bráðabirgða III í lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, sbr. lög nr. 57/2015, vísar Seðlabanki Íslands til birtingar enskrar útgáfu af reglugerðum framkvæmda- stjórnarinnar (ESB) 2024/856 og 2024/857 í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins (e. Official Journal of the European Union):

  1. https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX%3A32024R0856, birt í OJ deild L, undirdeild R, 2024/856, þann 24. apríl 2024;
  2. https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX%3A32024R0857, birt í OJ deild L, undirdeild R, 2024/857, þann 24. apríl 2024.

 

4. gr.

Gildistaka.

Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 6. tölul. 1. mgr. 117. gr. b laga um fjármála­fyrirtæki, nr. 161/2002, öðlast þegar gildi.

 

Seðlabanka Íslands, 26. nóvember 2024.

 

  Ásgeir Jónsson
seðlabankastjóri.
Rannveig Júníusdóttir
framkvæmdastjóri.

B deild - Útgáfud.: 28. nóvember 2024