Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1361/2024

Nr. 1361/2024 22. nóvember 2024

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 277/2008 um aðgerðir til að tryggja flugöryggi og skrá yfir flugrekendur er ekki uppfylla viðeigandi öryggiskröfur.

1. gr.

Við c-lið 4. gr. reglugerðarinnar bætast nýir töluliðir, 44, 45 og 46, sem orðast svo:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/661 frá 2. desember 2022 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2111/2005 um sameiginlegar við­miðanir sem hafa ber í huga í tengslum við innleiðingu eða afléttingu flugrekstrarbanns á vettvangi Sambandsins.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2691 frá 29. nóvember 2023 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 474/2006 að því er varðar skrá yfir flugrekendur sem bannað er að stunda flugrekstur eða sæta rekstrartakmörkunum innan Sambandsins.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1601 frá 30. maí 2024 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 474/2006 að því er varðar skrá yfir flugrekendur sem er bannað að stunda flugrekstur eða sæta rekstrartakmörkunum innan Sambandsins.

 

2. gr.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi eftirtaldar gerðir:

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/661 frá 2. desember 2022 um breyt­ingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2111/2005 um sameiginlegar viðmiðanir sem hafa ber í huga í tengslum við innleiðingu eða afléttingu flugrekstrarbanns á vettvangi Sambandsins, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 73 frá 15. mars 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 34, frá 25. apríl 2024, bls. 749-752.

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2691 frá 29. nóvember 2023 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 474/2006 að því er varðar skrá yfir flugrekendur sem bannað er að stunda flugrekstur eða sæta rekstrartakmörkunum innan Sambandsins, samkvæmt ákvörðun sameigin­legu EES-nefndarinnar nr. 138 frá 12. júní 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 65, frá 29. ágúst 2024, bls. 436-454.

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1601 frá 30. maí 2024 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 474/2006 að því er varðar skrá yfir flugrekendur sem er bannað að stunda flugrekstur eða sæta rekstrartakmörkunum innan Sambandsins, samkvæmt ákvörðun sameigin­legu EES-nefndarinnar nr. 217 frá 23. september 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 85, frá 21. nóvember 2024, bls. 367-384.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 3. mgr. 228. gr. laga um loftferðir, nr. 80/2020, og öðlast þegar gildi.

 

Innviðaráðuneytinu, 22. nóvember 2024.

 

F. h. r.

Árni Freyr Stefánsson.

Vala Hrönn Viggósdóttir.


B deild - Útgáfud.: 29. nóvember 2024