Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1727/2024

Nr. 1727/2024 10. desember 2024

GJALDSKRÁ
fyrir söfnunarstöð úrgangs á Höfn í Sveitarfélaginu Hornafirði.

1. gr.

Almennt.

Sveitarfélagið Hornafjörður innheimtir gjöld fyrir meðhöndlun úrgangs í samræmi við 11. gr. samþykktar um meðhöndlun úrgangs í Sveitarfélaginu Hornafirði nr. 236/2018.

 

2. gr.

Um móttökugjöld íbúa.

Íbúar greiða móttökugjöld á söfnunarstöð sveitarfélagsins eftir þyngd (kr./kg) og úrgangstegund farms skv. 4. gr. Úrgangur skal vigtaður á brettavog í söfnunarstöðinni ef farmur er minni en 50 kg á hverja úrgangstegund. Starfsmaður söfnunarstöðvar metur í hvaða flokk úrgangur fellur skv. gjald­skrá, að fenginni lýsingu úrgangshafa og með hliðsjón af því sem komið er með á söfn­unar­stöðina. Ef úrgangur fer yfir 50 kg á hverja úrgangstegund sem komið er með á söfnunar­stöðina, þá gildir sama ferli fyrir íbúa og fyrir fyrirtæki.

Ekki er tekið neitt gjald fyrir móttöku á flokkuðum úrgangi sem ber úrvinnslugjald, þar má nefna: pappaumbúðir, plastumbúðir, heyrúlluplast, frauðplast, glerumbúðir, málmumbúðir, hjól­barða, raf­tæki, ýmis spilliefni og ónýt ökutæki.

Ólíkum úrgangstegundum skal haldið aðskildum og skilað í viðeigandi flokka á söfnunarstöð.

 

3. gr.

Um móttökugjöld fyrirtækja.

Fyrirtæki greiða fyrir úrgang eftir þyngd (kr./kg) og úrgangstegund farms skv. 4. gr. Úrgangur skal vigtaður á brettavog í söfnunarstöðinni ef farmur er minni en 50 kg á hverja úrgangstegund eða á hafnarvog sveitarfélagsins á opnunartíma hennar ef farmur er yfir 50 kg á hverja úrgangstegund. Nauðsynlegt er að sýna vigtarnótu eða staðfestingu á vigtun til að komast inn á söfnunarstöðina á Höfn með slíka farma.

Í ákveðnum tilfellum skal fyrirtæki tómvigta ökutæki á hafnarvog eftir farmlosun á söfnunar­stöð. Sé þeirri skyldu ekki sinnt skal innheimta lágmarksgjald sem jafngildir 200 kg af blönd­uðum/grófum úrgangi eða 15.200 kr.

Heimilt er að hafna frekari förmum frá slíkum ökutækjum þar til tómvigtun hefur farið fram.

Fyrir vigtun eru greidd vogargjöld skv. gjaldskrá Hornafjarðarhafnar.

Ólíkum úrgangstegundum skal haldið aðskildum og skilað í viðeigandi flokka á söfnunarstöð.

 

4. gr.

Móttökugjöld á söfnunarstöð.

Gjöld vegna móttöku úrgangs á söfnunarstöð* eru eftirfarandi:

Flokkur 1. Kr./kg
Blandað efni eða efni með mikinn förgunarkostnað**
Blandaður/grófur úrgangur: 76
Úrgangur sem ekki á sér farveg til endurvinnslu eða blanda tveggja eða fleiri ólíkra úrgangs­tegunda s.s. grófur úrgangur frá framkvæmdum, ónýt húsgögn eða heimilisúrgangur. Má ekki innihalda endurvinnanlegan úrgang.
Plast án úrvinnslugjalds: 76
Harðplast, plaströr, fiskikör og annað sambærilegt plast.
Litað timbur: 57
Litað, málað, fúavarið, plasthúðað eða blandað.
Flokkur 2.  
Flokkað efni**
Hreint timbur: 32
Ekki litað, málað eða fúavarið.
Gifs og gifsplötur. 32
Matarafgangar í moltugerð: 32
Lífúrgangur frá heimilum eða rekstraraðilum.
Hreint steinefni frá framkvæmdum: 32
Steypubrot, postulín, flísar, keramik, gler og uppmokstur.
Flokkur 3.  
Hreint endurvinnanlegt efni
Plastumbúðir 0
Pappír, sléttur pappi, dagblöð og tímarit 0
Bylgjupappi 0
Frauðplast 0
Heyrúlluplast og stórsekkir - hreint 0
Málmumbúðir/brotajárn 0
Glerumbúðir, s.s. flöskur og krukkur 0
Garðaúrgangur án aðskotahluta 0
Endurnýtanlegir hlutir í nytjagám 0
Hjólbarðar 0
Raftæki 0
Rafhlöður og rafgeymar** 0
Málning og spilliefni** 0
Gjöld fyrir óflokkaðan úrgang
Blandað, pappír og plast (endurvinnsluefni) 33
Óflokkaða farma eða endurvinnanlega farma sem innihalda óhreint efni, að undanskildu blönduðum pappír og plasti 11.385 kr./klst.

* Ekki er tekið við kjöt- og sláturúrgangi, seyru og fitu, sóttmenguðum úrgangi, brotajárni sem inniheldur spilliefni eða veiðarfærum á söfnunarstöð.
** Fyrir rafhlöður eða rafgeyma og spilliefni án úrvinnslugjalds er heimilt að innheimta gjöld fyrir útlögðum förgunarkostnaði.

 

5. gr.

Móttökugjöld á urðunarstað.

Fyrir farma á urðunarstað skulu eftirfarandi gjöld greidd fyrir hvert kíló samkvæmt vigt á hafnarvog sveitarfélagsins.

Úrgangstegund Kr./kg
Blandaður/grófur úrgangur:
Úrgangur sem ekki á sér farveg til endurvinnslu eða blanda tveggja eða fleiri ólíkra úrgangstegunda s.s. grófur úrgangur frá framkvæmdum, ónýt húsgögn eða heimilisúrgangur. Má ekki innihalda endurvinnanlegan úrgang
57
Kjöt- og sláturúrgangur 39
Seyra og fita 39
Matarleifar í moltugerð 25

 

Aðeins fyrirtækjum sem hafa heimild sveitarfélagsins og eru með starfsleyfi til að flytja úrgang er heimilt að koma með úrgang beint á urðunarstaðinn í Lóni. Öll losun skal fara fram í samráði við rekstraraðila urðunarstaðar.

Innihaldi farmar losunaraðila annan úrgang en þann sem heimilt er að losa á urðunarstaðinn, eða úrgang sem væri hæfur til endurvinnslu, getur sveitarfélagið dregið til baka heimild til farmlosunar á urðunarstað.

 

6. gr.

Aðfararheimild.

Verði vanskil á greiðslu gjalda samkvæmt gjaldskrá þessari er hægt að innheimta gjöld með aðför sbr. 4. mgr. 23. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og 1. gr. laga nr. 90/1989 um aðför.

 

7. gr.

Lagaheimild og gildistaka.

Gjaldskrá þessi er sett með heimild í 23. gr. laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003, og öðlast þegar gildi.

Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá nr. 25/2024.

 

Samþykkt í bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar, 10. desember 2024.

 

Sigurjón Andrésson bæjarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 7. janúar 2025