Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur samþykkt breytingar á deiliskipulagi sem hér segir:
Tengivegur á milli Þverholts og Leirvogstungu. Um er að ræða tvíþætta breytingu á skipulagi. Annars vegar breytingu á legu og útfærslu tengibrautar milli Þverholts og Skeiðholts og hins vegar minnkun skipulagssvæðisins á milli Skólabrautar og Leirvogstungu.
Þverholt 25-27. Breytingin tekur til lóðanna 25 og 27 við Þverholt. Breytingin felur í sér að byggingarreitir eru breikkaðir úr 12 m í 15 m og byggingarreitur bílakjallara stækkar lítillega. Að öðru leyti eru gildandi skipulagsskilmálar óbreyttir.
Álafossvegur 23. Breytingin felst í því að byggingarreitur F6 hliðrast til suðausturs og stækkar úr 14,5 fm í 26,3 fm.
Ofangreindar breytingar á deiliskipulagi hafa hlotið meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast þær þegar gildi.
F.h. Mosfellsbæjar, 26. apríl 2017,
Ólafur Melsted skipulagsfulltrúi.
|