1. gr.
Við 1. málsl. 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar bætist: hvort sem þau teljast í millilanda- eða strandsiglingum er þau fara fyrir Suðvesturland.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar eru gerðar á 2. málsl. 3. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar:
- Í stað „20.000 BT“ kemur: 30.000 brúttótonn.
- Í stað „2. mgr.“ kemur: 3. mgr.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar eru gerðar á 3. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar:
- Í stað „20.000 brúttótonn“ kemur: 30.000 brúttótonn.
- B-liður orðast svo: að skipstjóri hafi fengið heimild Samgöngustofu fyrir siglingu um innri leið. Skilyrði þess að geta fengið slíka heimild er að skipstjóri hafi á undangengnum 18 mánuðum siglt sex sinnum áfalla- og athugasemdalaust til hafna við Faxaflóa, sem skipstjóri eða yfirstýrimaður. Siglingaheimild skipstjóra fellur úr gildi ef 24 mánuðir líða án þess að skipstjórinn sigli skipi til hafna við Faxaflóa. Samgöngustofa skal halda skrá yfir þá sem hafa virk leyfi og sannreynir vaktstöð siglinga að skipstjórar sem hyggjast sigla innri leið hafi gilda heimild Samgöngustofu til þess.
4. gr.
Eftirfarandi breytingar eru gerðar á 7. gr. reglugerðarinnar:
- 2. mgr. 7. gr. orðast svo: Skip sem heimild hafa til siglinga um innri leið skv. 6. gr. skulu tilkynna vaktstöð siglinga um fyrirhugaða siglingu um innri leið með minnst fjögurra klukkustunda fyrirvara eða þegar látið er úr höfn við Faxaflóa eða innan Selvogsbankasvæðisins. Tilkynning skal ítrekuð með 30 mínútna fyrirvara.
- Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi: Með tilkynningu skv. 2. mgr. skal fylgja siglingaáætlun með eftirfarandi upplýsingum:
- Ef komið er sunnan frá: Áætlaður komutími í Húllið (63°40'2ʺ N, 022°43'4ʺ V).
- Ef komið er norður af Garðskaga: Áætlaðan komutíma að aðskildum siglingaleiðum (64°08'7ʺ N, 022°43'4ʺ V).
5. gr.
Eftirfarandi breytingar eru gerðar á 8. gr. reglugerðarinnar:
- Í stað „Siglingastofnun Íslands“ kemur: Vaktstöð siglinga.
- Á eftir orðinu „heimilt“ kemur: í samráði við Landhelgisgæslu Íslands.
6. gr.
Við reglugerðina bætist ný grein, 8. gr. a., sem orðast svo:
Brot gegn reglugerð þessari varða sektum eða fangelsi í samræmi við 18. gr. laga um vaktstöð siglinga, nr. 41/2003, með síðari breytingum.
7. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt 13. gr. laga nr. 41/2003 um vaktstöð siglinga, 12. gr. laga um vitamál nr. 132/1999 og 2. gr. laga nr. 7/1975 um heimild fyrir ríkisstjórnina til þess að staðfesta fyrir Íslands hönd samþykkt um alþjóðareglur til að koma í veg fyrir árekstra á sjó, 1972, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 19. október 2022.
Sigurður Ingi Jóhannsson.
|