1. gr.
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss er heimilt að leggja á sérstakt sorphirðugjald (sorphreinsi- og sorpeyðingargjald) og skal gjaldið innheimtast með fasteignagjöldum, samanber samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Sveitarfélaginu Ölfusi nr. 1101/2005.
2. gr.
Gjaldið er sem hér segir: |
kr. |
Sorphreinsigjald á íbúðarhús á ári |
20.400 |
Sorpeyðingargjald á íbúðarhús á ári |
21.425 |
Tunnuleiga, á tunnu á ári |
615 |
Flutningur á tunnu (fyrsta tunna án gjalds, hver ferð) |
2.255 |
Fyrir hverja sérmetna fasteign er heimilt að leggja á vegna viðbótarpokaeiningar/tunnu á ári |
20.400 |
Atvinnuhúsnæði fyrir hvern poka á ári |
44.075 |
3. gr.
Fyrirtæki, lögaðilar og aðrir sem hafa með höndum starfsemi og koma með sorp á flokkunarstöð sveitarfélagsins í Þorlákshöfn skulu greiða móttöku- og sorpeyðingargjald samkvæmt magni.
Flokkur A (efni með úrvinnslugjald og önnur efni sem ekki hafa kostnað í för með sér) 0 kr. eða gjaldfrjálst. |
Rúlluplast kr./m³ |
0 |
Hjólbarðar kr./m³ |
0 |
Spilliefni kr./m³ |
0 |
Fernur kr./m³ |
0 |
Skilagjaldskyldar umbúðir kr./m³ |
0 |
Föt kr./m³ |
0 |
Flokkur B (endurvinnanlegt efni) kr./kg |
15 |
Flokkur B (endurvinnanlegt efni) kr./m³ |
3.180 |
Málmar |
3.385 |
Pappír |
0 |
Timbur |
3.385 |
Garðaúrgangur |
3.385 |
Veiðarfæri |
3.385 |
Kaðlar |
3.385 |
Flokkur C (blandaður óendurvinnanlegur) kr./kg |
27 |
Flokkur C (blandaður óendurvinnanlegur kr./m³ |
6.150 |
Heimilisúrgangur |
6.460 |
Rekstrarúrgangur |
6.460 |
Byggingarúrgangur |
6.460 |
4. gr.
Gjaldskrá þessi sem samin er og samþykkt af bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss er sett með heimild í 5. mgr. 25. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir og öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur brott gjaldskrá sama efnis nr. 1296/2018.
Þorlákshöfn, 16. desember 2019.
Elliði Vignisson bæjarstjóri.
|