Brautarholt 32. Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, 19. janúar 2023, breytingu á deiliskipulagi Skipholtsreits vegna lóðarinnar nr. 32 við Brautarholt. Í breytingunni sem lögð er til felst breyting á lóðamörkum, hækkun á vegghæð að Brautarholti, hækkun á nýtingarhlutfall vegna minni lóðar og B-rýma ásamt því að gert er ráð fyrir bílakjallara og að skilmálar um bílastæði verði endurskoðaðir. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Ásvegur 16. Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, 26. janúar 2023, breytingu á deiliskipulagi fyrir Sundin, reitir 1.3 og 1.4, vegna lóðarinnar nr. 16 við Ásveg. Í breytingunni sem lögð er til felst að byggja við húsið til norðurs einnar hæðar anddyri með risþaki (kvisti í þaki hússins) sem er einnig látið ganga yfir útitröppur til skjóls. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, 3. maí 2023.
Björn Axelsson.
|