Breyting á deiliskipulagi Kröfluvirkjunar. Tilefni breytingarinnar er breytt lega á Kröflulínu 3 í nánd við Kröflustöð. Breytingin felst í því að lega línunnar breytist frá Sandabotnaskarði að Kröflustöð og er breytt lega línunnar færð inn á deiliskipulagsuppdrætti A og B. Þá eru mannvirki sem byggð hafa verið á skipulagssvæðinu frá því deiliskipulagið öðlaðist gildi færð inn á deiliskipulagsuppdrátt B. Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið þá málsmeðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
Mývatnssveit, 13. maí 2019.
F.h. Skútustaðahrepps,
Guðjón Vésteinsson skipulagsfulltrúi.
|