Hinn 6. janúar 2011 var aðalskrifstofu ráðs Evrópusambandsins afhent fullgildingarskjal Íslands vegna samnings milli Evrópusambandsins, Íslands, Furstadæmisins Liechtenstein og Konungsríkisins Noregs um fjármagnskerfi EES 2009-2014, sem gerður var í Brussel 28. júlí og 19. ágúst 2010. Alþingi hafði með lögum nr. 159/2010, frá 28. desember 2010, um breytingu á lögum um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993, heimilað ríkisstjórninni að fullgilda samninginn. Samningnum var beitt til bráðabirgða frá 1. janúar 2011 og öðlaðist gildi 1. maí 2011.
Samningurinn er birtur sem fylgiskjal með auglýsingu þessari.
Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.
Utanríkisráðuneytinu, 26. ágúst 2022.
F. h. r.
Martin Eyjólfsson.
|