Hinn 22. október 2009 var undirrituð í London sameiginleg bókun um niðurstöður fiskveiðiviðræðna um stjórnun veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum í Norðaustur-Atlantshafi á árinu 2010. Alþingi hafði hinn 18. maí 2010, með þingsályktun nr. 13/138, heimilað ríkisstjórninni að staðfesta bókunina. Bókuninni var beitt til bráðabirgða frá 1. janúar 2010.
Bókunin er birt sem fylgiskjal með auglýsingu þessari.
Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.
Utanríkisráðuneytinu, 26. ágúst 2022.
F. h. r.
Martin Eyjólfsson.
|