Hinn 20. september 2012 var aðalframkvæmdastjóra Evrópuráðsins afhent fullgildingarskjal Íslands vegna Evrópuráðssamnings um vernd barna gegn kynferðislegri misneytingu og kynferðislegri misnotkun sem gerður var í Lanzarote 25. október 2007 (Lanzarote-samningur). Alþingi hafði hinn 15. mars 2012, með þingsályktun nr. 15/140, heimilað ríkisstjórninni að fullgilda samninginn.
Samningurinn öðlaðist gildi gagnvart Íslandi 1. janúar 2013 og er birtur sem fylgiskjal með auglýsingu þessari.
Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.
Utanríkisráðuneytinu, 9. desember 2021.
F. h. r.
Martin Eyjólfsson.
|