Á grundvelli laga nr. 103/1994 um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara tilkynnir Byggðastofnun að flutningsjöfnunargjald á neðangreindum olíuvörum verður sem hér segir frá og með 1. janúar 2019 og gildir gjaldið þar til annað verður ákveðið:
Bifreiðabensín |
0,50 kr. á lítra |
Gasolía |
0,77 kr. á lítra |
Aðrar olíur og blöndur til brennslu |
0,20 kr. á kg |
Flugsteinolía (þotueldsneyti) |
0,10 kr. á lítra |
Flugvélabensín |
0,10 kr. á lítra |
Samkvæmt 3. gr. laga nr. 103/1994 um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara skulu dreifingaraðilar samkvæmt 1. gr. laganna, aðrir en þeir sem annast innanlandssölu á olíu í öllum landshlutum, greiða flutningsjöfnunargjaldið við innheimtu aðflutningsgjalda miðað við innflutt móttekið magn. Tollstjórinn í Reykjavík og sýslumenn utan Reykjavíkur annast samkvæmt sömu grein innheimtu gjaldsins og skulu skila því til Flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara.
Auglýsing þessi kemur í stað auglýsingar nr. 1140/2017.
Byggðastofnun, 18. desember 2018.
Aðalsteinn Þorsteinsson forstjóri.
Arnar Már Elíasson, formaður stjórnar Flutningsjöfnunar- sjóðs olíuvara.
|