1. gr.
2. mgr. 4. gr. reglnanna breytist og orðist svo:
Verkefni þurfa að vera framkvæmd í samvinnu við samstarfsaðila í tilteknu þróunarlandi. Einnig geta fleiri samstarfsaðilar komið að verkefninu s.s. háskólar og félagasamtök. Gjaldgeng samstarfslönd eru þau lágtekjuríki og lágmillitekjurríki, sem eru á lista þróunarsamvinnunefndar Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD, DAC) um viðtökulönd opinberrar þróunaraðstoðar. Jafnframt eru gjaldgeng samstarfslönd öll smáeyþróunarríki (SIDS) á sama lista. Utanríkisráðuneytið birtir á heimasíðu sinni lista yfir gjaldgeng samstarfslönd þegar auglýst er eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum.
2. gr.
1. málsl. 16. gr. reglnanna breytist og orðist svo:
Óháð ytri úttekt á starfsemi sjóðsins fari fram á þriggja ára fresti frá stofnun hans.
3. gr.
Reglur þessar, sem settar eru með vísan til 5. gr. reglugerðar um styrkveitingar ráðherra, nr. 642/2018, sbr. 42. gr. laga um opinber fjármál, nr. 123/2015 og á grundvelli 10. gr., sbr. 6. og 8. gr. laga um alþjóðlega þróunarsamvinnu nr. 121/2008, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 23. janúar 2020.
Guðlaugur Þór Þórðarson.
|