Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Hrunamannahrepps samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlun:
Deiliskipulagsbreyting, Flatholt 1 og 2, iðnaðarsvæði á Flúðum. Breytingin felst í stækkun Flatholts 2 (lóðar 2) um 3 m til vesturs, stækkun byggingarreits B á Flatholti 2 og færslu á byggingarreit A til samræmis. Kvöð er um sameiginlegt snúningsplan á lóð 1 og 2. Samþykkt í sveitarstjórn 7. mars 2019.
Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
Laugarvatni, 26. mars 2019.
Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.,
Rúnar Guðmundsson.
|