Á grundvelli laga nr. 103/1994 um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara tilkynnir Byggðastofnun að flutningsjöfnunargjald á neðangreindum olíuvörum verður sem hér segir frá og með 1. janúar 2018 og gildir gjaldið þar til annað verður ákveðið:
|
Bifreiðabensín |
0,57 kr. á lítra |
|
Gasolía |
0,77 kr. á lítra |
|
Aðrar olíur og blöndur til brennslu |
0,17 kr. á kg |
|
Flugsteinolía (þotueldsneyti) |
0,10 kr. á lítra |
|
Flugvélabensín |
0,25 kr. á lítra |
Samkvæmt 3. gr. laga nr. 103/1994 um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara skulu dreifingaraðilar samkvæmt 1. gr. laganna, aðrir en þeir sem annast innanlandssölu á olíu í öllum landshlutum, greiða flutningsjöfnunargjaldið við innheimtu aðflutningsgjalda miðað við innflutt móttekið magn. Tollstjórinn, í Reykjavík og sýslumenn, utan Reykjavíkur, annast samkvæmt sömu grein innheimtu gjaldsins og skulu skila því til Flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara.
Auglýsing þessi kemur í stað auglýsingar nr. 1164/2016.
Byggðastofnun, 20. desember 2017.
Aðalsteinn Þorsteinsson forstjóri.
Arnar Már Elíasson, formaður stjórnar Flutningsjöfnunar- sjóðs olíuvara.
|