Hinn 26. apríl 2006 var ráði Evrópusambandsins tilkynnt um samþykki Íslands á tilmælum Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2005/761/EB frá 28. september 2005 um að greiða fyrir því að aðildarríkin gefi út samræmdar vegabréfsáritanir til stuttrar dvalar fyrir rannsóknarmenn frá þriðju löndum sem ferðast innan Bandalagsins í því skyni að stunda vísindarannsóknir, sem fela í sér breytingu á samningi sem ráð Evrópusambandsins og lýðveldið Ísland og konungsríkið Noregur gerðu með sér 18. maí 1999 um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 21/2000. Breytingin öðlaðist gildi að því er Ísland varðar 26. apríl 2006.
Tilmælin eru birt sem fylgiskjal með auglýsingu þessari.
Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.
Utanríkisráðuneytinu, 27. apríl 2006.
Geir H. Haarde.
Gunnar Snorri Gunnarsson.
Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal)
|