Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1219/2019

Nr. 1219/2019 18. desember 2019

AUGLÝSING
um flutningsjöfnunargjald á olíuvörum.

Á grundvelli laga nr. 103/1994 um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara tilkynnir Byggðastofnun að flutningsjöfnunargjald á neðangreindum olíuvörum verður sem hér segir frá og með 1. janúar 2020 og gildir gjaldið þar til annað verður ákveðið:

Bifreiðabensín 0,50 kr. á lítra
Gasolía 0,75 kr. á lítra
Aðrar olíur og blöndur til brennslu 0,05 kr. á kg
Flugsteinolía (þotueldsneyti) 0,15 kr. á lítra
Flugvélabensín 0,10 kr. á lítra

Samkvæmt 3. gr. laga nr. 103/1994 um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara skulu dreifingar­aðilar samkvæmt 1. gr. laganna, aðrir en þeir sem annast innanlandssölu á olíu í öllum landshlutum, greiða flutningsjöfnunargjaldið við innheimtu aðflutningsgjalda miðað við innflutt móttekið magn. Tollstjór­inn í Reykjavík og sýslumenn utan Reykjavíkur annast samkvæmt sömu grein innheimtu gjaldsins.

Auglýsing þessi kemur í stað auglýsingar nr. 1189/2018.

Byggðastofnun, 18. desember 2019.

Aðalsteinn Þorsteinsson forstjóri.

Arnar Már Elíasson,
formaður stjórnar  
Flutningsjöfnunar- 
sjóðs olíuvara.      


B deild - Útgáfud.: 23. desember 2019